fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Matur

Átta ástæður fyrir því að kaffineyslan geri þér gott

DV Matur
Sunnudaginn 5. apríl 2020 09:33

Getur heitt kaffi hjálpað til við að kæla þig?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kaffi er vafalaust einn vinsælasti drykkur veraldar. Margir vilja meina að það sé allra meina bót, á meðan aðrir hafa óbeit á því og telja það óhollt. Hvorn flokkinn sem þú fellur í, birtum við hér átta góðar og gildar ástæður fyrir því að þú ættir að drekka kaffi.

1. Léttir lundina

Ef þú er morgunfúll eða ferð illa sofinn á fætur eru góðar líkur á því að kaffisopi geti fengið þig til að líða betur. Æ fleiri rannsóknir renna stoðum undir það að kaffi auki dópamínframleiðslu í heilanum. Samkvæmt einni rannsókn eru konur sem drekka yfir 4 bolla á dag í 20% minni hættu á að verða þunglyndar.

2. Heldur aftur að sykursýki

Þeir sem neyta talsverðs magns af kaffi daglega eru í minni hættu á að þróa með sér tegund tvö af sykursýki en þeir sem koma ekki nálægt drykknum. Samkvæmt rannsókn frá Harvard Medical School er þetta vegna þess að kaffi inniheldur efni sem lækka blóðsykurinn.

3. Verndar hjartað

Tveir eða fleiri bollar á dag geta minnkað líkurnar á hjartaáfalli. Samkvæmt sumum heimildum er fólk sem drekkur fjóra eða fleiri bolla á dag í 11% minni hættu á að fá hjartaáfall.

4. Bætir hreyfihæfni Parkinsonssjúklinga

Rannsóknir hafa sýnt fram á það að koffínið í kaffi hjálpi fólki sem þjáist af sjúkdómnum að stýra hreyfingum sínum. Þá hefur líka verið sýnt fram á að há koffíninntaka minnki líkurnar á sjúkdómnum yfirleitt.

5. Kemur í veg fyrir myndun gallsteina

Ef þú ert ákafur kaffiunnandi, nýtur þess að bragða reglulega á víni, leggur þér oft fisk til munns eða borðar brauð öllum stundum gætirðu verið að fyrirbyggja gallsteinamyndun á þess að vita af því!

6. Leikur í lyndi við lifrina

Já, þú heyrðir rétt – kaffið og lifrin eru mestu mátar. Rannsókn á 125.000 manns leiddi í ljós að þeir sem drykkju að minnsta kosti einn kaffibolla á dag yfir 22 ára tímabil væru í 20% minni hættu á að þróa með sér skorpulifur. Óhófleg áfengisneysla veldur sjúkdómnum en ef kaffi er drukkið með gæti það unnið á móti.

7. Minnkar sjálfsvígshættu

Rannsókn sem gerð var á vegum Harvard School of Public Health leiðir líkur að því að þeir sem drekka 2-4 bolla á dag séu í 50% minni hættu á að stytta sér aldur – og gildir það um bæði kynin. Þetta á að stafa af meintri hjálp drykkjarins gegn þunglyndi.

8. Kaffi bætir íþróttaframmistöðu þína

Í skýrslu frá New York Times segir að vísindamenn hafi löngum vitað að kaffibolli geti komið þér í gang fyrir ræktina. Sérstaklega ef æfingarnar reyna á úthald, eins og spinning og skokk. Í skýrslunni segir að „koffínið í drykknum auki fjölda fitusýra í blóðrásinni sem leiði til þess að vöðvar íþróttamannsins hafa meira til að brenna og halda því út lengur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa