Eygló Harðardóttir, fyrrverandi félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur heldur betur söðlað um, eins og hún segir frá á Facebook-síðu sinni.
„Þá er nýr kafli í lífinu hafinn, sannkallaður ævintýrakafli. Ég er byrjuð í matreiðslunámi undir leiðsögn Ólafs Helga Kristjánssonar, yfirkokks og matreiðslumeistara á Hótel Sögu. Áætluð útskrift verður 2022, – sem yrði besta fimmtugsafmælisgjöf sem ég gæti hugsað mér,“ skrifar Eygló, en hún hefur starfað á Hótel Sögu undanfarið, til dæmis við það að þjóna til borðs.
„Af hverju matreiðsla er spurningin sem hinir ýmsu sem hafa hitt mig í kokkagallanum á Hótel Sögu hafa spurt (þegar þeir loksins átta sig á að þetta er ég). Ég hef lengi haft áhuga á mat. Það vita flestir sem þekkja mig. Ég fékk svo tækifæri til að starfa í eldhúsinu hjá Kaffistofu Samhjálpar sem sjálfboðaliði og þar kviknaði draumurinn sem er nú orðinn að veruleika.“
Eygló dásamar sinn nýja vinnustað, sem er ansi frábrugðinn Alþingi, sem hún kallaði sinn vinnustað til fjölda ára, eða allt frá árinu 2008.
„Og á hinum frábæra vinnustað Hótel Sögu þar sem má finna snilldar veisluþjónustu, ilmandi nýtt bakkelsi úr bakaríinu á staðnum og tvo framúrskarandi veitingastaði, Grillið sem hefur áratugum saman verið allra besti veitingastaður landsins og hinn nýopnaða Mími þar sem áherslan er á íslenskt hráefni og spennandi framsetningu. Þar er líka yndislegt starfsfólk sem hefur tekið mér afskaplega vel.“
Hér má sjá Eygló og flokkssystur hennar hjá Framsóknarflokknum, Siv Friðleifsdóttur, umkringdar mat: