Bolludagurinn er á mánudag og einhverjir sem kjósa að kaupa sér tilbúnar bollur í staðinn fyrir að baka þær sjálfir.
Myllan hefur innkallað vatnsdeigsbollur sem voru vanmerktar með tilliti til ofnæmis- og óþolsvalds, mjólkur. Gamlir límmiðar fóru á hluta framleiðslunnar sem fór í dreifingu í dag, 28. febrúar.
Í tilkynningu frá Myllunni er fólk með mjólkuróþol eða -ofnæmi varað við neyslu bollanna og biður Myllan innilegrar velvirðingar á mistökunum. Hægt er að skila bollunum í verslanir þar sem þær voru keyptar.
Vnr. 2267 Myllu vatnsdeigsbollur 6stk – strikamerki 5690568022672
Vnr. 2269 Myllu vatnsdeigsbollur litlar 6stk – strikamerki 5690568022696