fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
Fréttir

Hrottafengin nauðgun á Akureyri fer loksins fyrir dóm

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. mars 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir hrottafengna nauðgun sem framin var skömmu fyrir og eftir miðnætti laugardagsins 13. apríl 2024 í íbúð á Akureyri.

Maðurinn er ákærður fyrir að hafa með ofbeldi og ólögmætri nauðung haft önnur kynferðismök við konu án hennar samþykkis, en ákærði tók konuna kverkataki, sló hana í andlitið og líkama, kleip í geirvörtur hennar og snéri upp á þær, beit í efri vör hennar, brjóst og háls, reif í hár hennar og tók um höfuð hennar og lét hana veita honum munnmök, stakk fingri í leggöng hennar og reyndi að stinga getnaðarlim sínum í leggöng hennar, eins og segir í ákæru.

Hafði árásin þær afleiðingar að konan hlaut marblett á barkakýli, bólgna efri vör, rispu og roða á hægri mjöðm, margar rispur á vinstri upphandlegg, margar grunnar rispur á vinstra herðablaði og niður að mjóbaki, á hægri síðu, hárlos, eymsli í höfuðleðri og víðsvegar um líkamann.

Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Konan krefur manninn um 3 milljónir króna í miska- og skaðabætur.

Aðalmeðferð er 13. mars við Héraðsdóms Norðurlands eystra á Akureyri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Pilturinn sem banaði Bryndísi Klöru orðinn 18 ára en fer ekki í almennt fangelsi – Með full afnot af síma og sækir ökutíma

Pilturinn sem banaði Bryndísi Klöru orðinn 18 ára en fer ekki í almennt fangelsi – Með full afnot af síma og sækir ökutíma
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Skýr merki um að fjölskyldur á Íslandi misnoti au pair-kerfið til að útvega sér ódýrt vinnuafl

Skýr merki um að fjölskyldur á Íslandi misnoti au pair-kerfið til að útvega sér ódýrt vinnuafl
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Samherjamálið – Lögmaður 252 starfsmanna krefur Baldvin um efndir

Samherjamálið – Lögmaður 252 starfsmanna krefur Baldvin um efndir
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sema Erla og María Lilja með stöðu sakbornings í tvö ár – Bendir á „bitra kallinn“ í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins

Sema Erla og María Lilja með stöðu sakbornings í tvö ár – Bendir á „bitra kallinn“ í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
Fréttir
Í gær

Eineltismálið í Kópavogi – Faðir eins úr hópnum ætlar að láta son sinn biðja stúlkuna afsökunar

Eineltismálið í Kópavogi – Faðir eins úr hópnum ætlar að láta son sinn biðja stúlkuna afsökunar
Fréttir
Í gær

Bíræfnir dósaþjófar í Eyjum bættu fyrir brot sín – Hlutu þrátt fyrir það dóm

Bíræfnir dósaþjófar í Eyjum bættu fyrir brot sín – Hlutu þrátt fyrir það dóm