fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Krefst þess að listamannalaun verði hækkuð

Ritstjórn DV
Föstudaginn 22. maí 2026 09:30

Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ónefndur aðili leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir því að fjárhæð starfslauna listamanna hefði ekki tekið tillit til þeirrar þróunar sem hefði orðið á launum og verðlagi líkt og gert væri ráð fyrir í lögum um listamannalaun.

Er því vart hægt annað en að draga þá ályktun að viðkomandi fari fram á upphæðin verði hækkuð og þá til samræmis við hækkanir á launum og verðlagi í landinu.

Í 4. grein laga um listamannalaun segir:

„Fjárhæð starfslauna skal koma til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála.“

Óhætt er að segja að ákvæðið sé mjög almennt orðað og engar tölur eða viðmið um endurskoðun launanna, með tilliti til þessara þriggja þátta, eru nefnd í lögunum.

Þess er ekki getið í bréfi umboðsmanns til þess sem kvartaði hvort viðkomandi hafi fengið úthlutað listamannalaunum.

Í bréfinu segir að það sé hlutverk umboðsmanns að hafa í umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt sem nánar greini í lögum og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Skuli umboðsmaður gæta þess að jafnræði sé í heiðri haft í stjórnsýslunni og að hún fari að öðru leyti fram í samræmi við lög og vandaða stjórnsýsluhætti.  Samkvæmt lögum taki starfsvið embættisins ekki til starfa Alþingis og stofnana þess.

Vitnar umboðsmaður til ákvæða laga um listamannalaun, fjárhæð þeirra og endurskoðun fjárhæðarinnar samkvæmt áðurnefndri 4. grein laganna.

Segir umboðsmaður að ljóst sé að samkvæmt þessum lögum sé það verkefni Alþingis að taka afstöðu til endurskoðunar fjárhæðar starfslauna listamanna og sé það gert við afgreiðslu fjárlaga ár hvert. Þar sem ákvörðun um fjárhæð starfslaunanna sé liður í störfum Alþingis séu ekki uppfyllt skilyrði laga fyrir því að embættið taki kvörtunin til frekari meðferðar og málinu sé þar með lokið af hálfu umboðsmanns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt