

Bernardo Silva segir að tíminn hafi verið kominn til að yfirgefa Manchester City eftir níu ára afar sigursæla dvöl hjá félaginu.
Portúgalski miðjumaðurinn tilkynnti í apríl að hann myndi yfirgefa City þegar samningur hans rennur út í sumar. Silva hefur verið einn mikilvægasti leikmaður félagsins á gullaldartímabili undir stjórn Pep Guardiola.
Á meðan á dvöl hans stóð vann Manchester City sex Englandsmeistaratitla, Meistaradeild Evrópu auk fjölda bikara innanlands.
Silva sagði að ákvörðunin byggðist á nokkrum þáttum, bæði persónulegum og knattspyrnulegum.
„Við unnum svo mikið sem kynslóð og nú er komið að þessum ungu leikmönnum að fá sitt tækifæri,“ sagði Silva.
Hann viðurkenndi einnig að fjölskyldan hefði haft mikil áhrif á ákvörðunina.
„Ég hef verið langt frá fjölskyldunni minni í tólf ár og vil komast nær henni aftur,“ sagði Portúgalinn.
Silva sagði jafnframt að hann væri tilbúinn í nýja áskorun þrátt fyrir að hann elski Manchester City og hafi notið áranna þar gríðarlega vel.
Framtíð Silva er enn óljós en hann hefur verið orðaður við Barcelona, Atlético Madrid, Juventus og félög í Sádi-Arabíu. Draumur hans er þó sagður vera að spila á Spáni áður en ferlinum lýkur.