fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. maí 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, segir að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra fari með ósannindi og gífuryrði um handboltastuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn.

Tilefnið eru fréttaflutningur og umræður um framgöngu stuðningsmanns ÍBV á leik liðsins gegn Val í vikunni. Stuðningsmaður viðhafði fordómafull köll um markvörð Vals, Hafdísi Renötudóttur, vegna kynhneigðar hennar en hún er samkynhneigð. ÍBV hefur birt yfirlýsingu vegna málsins þar sem kemur fram að stuðningsmaðurinn hefur verið settur í tímabundið bann vegna þessarar hegðunar.

Málið hefur víða vakið reiði í samfélaginu og orðið kveikja að umræðum um bakslag í réttindabaráttu hinsegin fólks.

Meðal þeirra sem lögðu orð í belg í umræðunni í gær var Hanna Katrín sem fordæmdi hegðunina og sagði á Facebook-síðu sinni:

„Ég veit að þetta er ekki það sem félagið vill standa fyrir og geri ráð fyrir að máli verði tekið föstum tökum í Vestmannaeyjum sem og á vettvangi Handknattleikssambands Íslands. En svona fordómar, niðrandi köll á andstæðinga í íþróttaleik, eiga sér ekki stað í tómarúmi. Samtökin 78 sem og aðrir sem starfa innan mannréttindasamtaka ýmis konar hafa bent á sýnilegt bakslag í réttindum hinsegin fólks hér á landi.“

Gefur hún í skyn að Miðflokksmenn gefi tóninn fyrir hegðun af þessu tagi með tali um hinsegin fána og annað sem lýtur að baráttu hinsegin fólks:

„Nú vill Miðflokkurinn fara til baka til gömlu góðu dagana þar sem hinsegin fólk var ekki svona sýnilegt heldur var haldið í skugganum. Til að ná þessu fyrirheitna ríki sínu herjar Miðflokkurinn nú á almenning með innfluttum fordómum. Stefið í fordómarausinu er að aukin réttindi hinsegin fólks þýði minni réttindi annarra.“

„Ein uppáhaldsiðja Miðflokksmanna er að misnota íslenska fánann í fordómafullri orðræðu sinni um málefni hinsegin fólks. Þess vegna er rétt að draga fram að sem afrekskona í íþrótt sinni, landsliðskona sem hefur borið hróður Íslands víða, hefur Hafdís Renötudóttir gert margfalt meira til að heiðra íslenska fánann en allir Miðflokksmenn til samans.“

Fúkyrðaflaumur og ósannindi um Miðflokkinn

Sigríði Á. Andersen blöskrar málflutningur Hönnu Katrínar í málinu og segir hana fara með ósannindi um stefnu Miðflokksins:

„Atvinnuráðherrann lætur þannig fúkyrðaflauminn renna á FB síðu sinni og beinir spjótum sínum að Miðflokknum og dregur ekkert af sér í fordómafullri umræðu og hreinum ósannindum um stefnu Miðflokksins, kjörna fulltrúa hans og kjósendur, – vegna óvandaðrar uppákomu á íþróttaleik. Nú er komið í ljós það sem flesta hlaut að gruna, að ekki var um hóp manna að ræða heldur hegðunarvandamál eins manns, eða eins og það er kallað í íþróttaheiminum þessi dægrin, eins „aðila“. Sá ku nú þurfa að taka út refsingu af hálfu HSÍ.

Ekki veit ég hvað kann að hrjá þennan „aðila“ sem leiðir til svona hegðunar sem er honum einum til niðurlægingar. Hvort um sé að kenna hömlulausu uppeldi eða einhverjum krankleika. Kannski tilheyrir þessi „aðili“ hóp í viðkvæmri stöðu í þeim skilningi að taka þurfi tillit til þegar orð og gjörðir hans eru metnar. Það veit atvinnuráðherra ekki. Allt að einu kýs atvinnuvegaráðherra að veita þessari óvönduðu hegðun eins manns vængi með gífuryrðum og ósannindum um stuðningsmenn ÍBV, Miðflokkinn og flesta stjórnmálamenn lífs og liðna.“

Vilji hvorki heyra né sjá af atvinnulífinu

Sigríður sendir Hönnu fleiri pillur og segir hana vera einstaka í röð atvinnuvegaráðherra vegna þess að hún vilji hvorki heyra né sjá  af atvinnulífinu:

„Núverandi atvinnuvegaráðherra sker sig úr frá öllum forverum sínum. Hún er eini ráðherra málaflokksins sem vill helst hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu. Hún hefur látið sér fátt um finnast um áhrif skattaherferðar ríkisstjórnarinnar á smærri byggðarlög og atvinnulífið. Hún virðist líta á undirstöðu íslensk efnahagslífs, sjávarútveginn, sem vandamál sem þurfi að minnka en ekki stækka. Ef hún hefði raunverulega áhuga á atvinnutækifærum í landinu þá hefði hún trúlega kært sig inn i fréttina sem lesin var á eftir fréttinni um „aðilann“ í ÍBV. Sú frétt varðaði reyndar líka Eyjamenn.

Ófremdarástand hefur verið á samgöngum til Eyja mánuðum saman og í dag jókst enn á ógæfuna í þeim efnum þegar bókunarvél Herjólfs lagðist niður. Atvinnulíf í Eyjum eins og annars staðar á landinu er háð reglulegum samgöngum. Hefði atvinnuvegaráðherra raunverulegan áhuga á atvinnulífinu, þótt ekki væri nema sem næmi brotabrot af áhuga hennar á fánum og skoðunum manna á fánum, þá hefði hún nýtt vinnutímann sinn í ráðuneytinu í dag til þess að láta sig varða samgöngur til Eyja.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum
Efnaleki í Hafnarfirði
Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“
Fréttir
Í gær

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir