

Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, grunaður um alvarlega líkamsárás, heimilisofbeldi, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, íkveikju og fleira.
Landsréttur hefur úrskurðað gæsluvarðhald yfir erlendum manni til föstudagsins 15. maí næstkomandi en hann er grunaður um mjög alvarleg brot eins og kemur fram í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá 28. apríl.
Það er vegna gruns um alvarlega líkamsárás, heimilisofbeldi, ítrekuð stórfelld brot í nánu sambandi, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, íkveikju, hótanir og ofbeldis og hótana í garð opinberra starfsmanna, brota gegn lögreglumönnum og fíkniefnalagabrot.
Lögregla var kölluð til þann 6. febrúar árið 2024 vegna elds að íbúð sem eiginkona hins grunaða manns hafði til umráða. Hafði lögregla vísað eiginmanninum frá íbúðinni fyrr um daginn vegna skemmda á innanstokksmunum og íbúðinni sjálfri. Er hann grunaður um að hafa komið aftur og kveikt í íbúðinni.
Þar með er sögunni alls ekki lokið hvað varðar aðkomu lögreglu að málinu.
Þann 13. apríl árið 2024 hafði leigubílstjóri samband við lögregluna. En þá var eiginkonan, brotaþoli í málinu, allslaus í bílnum. Sagði hún að maðurinn hefði tekið af henni veskið og lykla og svo slegið hana í andlitið.
Þann 11. desember árið 2025 hafði konan samband við lögregluna og óskaði eftir aðstoð. Sagði hún manninn hafa hótað sér lífláti og að hann hefði sparkað í bakið á henni af miklu afli. Var maðurinn handtekinn í kjölfarið af tilkynningunni en þegar hann var færður á lögreglustöð hótaði hann að drepa lögreglumann.
Tveimur dögum seinna, þann 13. desember, barst lögreglu tilkynning um heimilisofbeldi. Þegar lögreglumenn komu að heimilinu neitaði maðurinn að opna hurðina og hleypti konunni ekki að til þess að opna hurðina. Þurftu lögreglumenn á endanum að sparka niður hurðina og handtaka manninn. En á meðan þessu stóð kveikti hann í vegabréfinu sínu.
Tveimur dögum seinna, þann 15. desember, óskaði konan eftir nálgunarbanni gegn manninum. Sagðist hún vera hrædd við hann, enda hafi hann beitt hana langvarandi ofbeldi, bæði andlegu og líkamlegu.
Degi seinna tók lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um brottvísun mannsins af heimilinu og til að sæta nálgunarbanni gagnvart konunni. En það dugði ekki til því að þann 4. janúar var maðurinn handtekinn eftir að hafa veist að konunni utandyra. Var hún með áverka víðs vegar á andliti og höfði eftir að hann hafði sparkað í höfuð hennar ítrekað.
Var hún flutt á sjúkrastofnun en hann handtekinn og fluttur í fangaklefa. Þegar lögreglumenn voru að fara inn í fangaklefann til að yfirheyra hann heyrðu þeir hann öskra: „I will
kill this wife. I will fire this whore.“
Hefur maðurinn verið vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði en það hefur ekki dugað til. Er hann grunaður um að hafa í sex skipti hringt í konuna og þar með brotið nálgunarbannið.