

Fjölskyldu í Kaliforníu brá heldur betur í brún þegar það heyrðist bankað á hurðina en fyrir utan var óður maður með hníf. Var atvikinu lýst eins og atriði úr hryllingsmynd.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Kona að nafni Rebecca Breen og eiginmaður hennar sátu í makindum fyrir framan imbann á fimmtudagskvöld á heimili þeirra í bænum Arden nærri Sacramento í Kaliforníu. Um klukkan 20:30 heyrðu þau bank og fengu tilkynningar í símana sína um hreyfingu fyrir framan hurðina.
Eins og margir eru Breen hjónin með svokallaða Ring-myndavél á hurðinni og brá þeim heldur betur í brún þegar þau sáu hvað var að gerast fyrir utan.
„Við heyrðum hátt bank og við kíktum á Ring myndavélina en þá sáum við að eitthvað mjög skrýtið var að eiga sér stað,“ segir Breen.
Fyrir utan heimilið var maður vopnaður hníf. Hann óð fram og til baka, otaði hnífnum í húsið, opnaði munninn og lokaði til skiptis og virtist vera að reyna að komast inn. Var þetta eins og atriði úr hryllingsmynd og eðlilega urðu hjónin logandi hrædd.
„Þetta var hryllilegt, algjörlega hryllilegt,“ segir Breen.
Óttaðist hún að maðurinn næði að brjóta sér leið inn í húsið og ráðast á hjónin. Var hún fljót að grípa símann og hringja á neyðarlínuna.
Kom þá í ljós að fleiri nágrannar hennar höfðu séð manninn og hringt í sama númer. Var lögregla þegar á leiðinni.
Nokkrum mínútum síðar voru lögreglumenn mættir á staðinn en þá var óði hnífmaðurinn á bak og burt. Gerð var víðtæk leit að honum í hverfinu og þyrla notuð til að skanna yfir svæðið. Reyndist það árangurslaust að finna hann þetta kvöld.
En maðurinn slapp ekki undan réttvísinni. Greint var frá því á laugardag að hann hefði verið handsamaður af lögreglu.
Að sögn lögreglunnar hafði hann beitt hnífnum á fleiri heimili í hverfinu og rispað hurðir. Hefur hann verið ákærður fyrir að fara óboðinn inn á lóðir fólks en hefur verið sleppt úr haldi. Hrósaði lögregla íbúum hverfisins fyrir að hafa látið fljótt vita af manninum og haldið sig innandyra þangað til lögreglan kom á svæðið.
„Ég held að við höfum verið valin af handahófi,“ segir Breen. „Ég held að við höfum ekki sérstaklega verið valin sem skotmörk, en þetta er mjög óhugnanlegt því ef þetta hefðu ekki verið við þá hefði þetta verið einhver annar.“
Eru íbúar hins vegar ekki jafn sáttir við lögregluna og lögreglan er við þá. Hafa sumir lýst yfir óánægju með að manninum hafi verið sleppt aftur út á götuna. Einnig að viðbrögð lögreglunnar þetta kvöld hefði geta verið betra.