fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
Fréttir

Íbúar vilja ekki þéttingu byggðar nálægt heimilum sínum

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 09:30

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meirihluti íbúa höfuðborgarsvæðisins er andvígur þéttingu byggðar í nánasta nærumhverfi við heimili sitt. Þetta leiða niðurstöður skoðanakönnunar Prósents í ljós sem unnin var fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).

Um var að ræða viðhorfskönnun um búsetu- og skipulagsóskir sem unnin var í marsmánuði.

Í könnuninni var meðal annars spurt hvaða þættir skipta mestu máli við val á húsnæði og nærumhverfi auk þess sem viðhorf þátttakenda til þéttingar byggðar í þeirra nánasta nærumhverfi var kannað. Alls bárust rúmlega 2.000 svör og svarhlutfallið í könnuninni var 50%.

Aðspurð hvaða atriði skipta mestu máli við val á nærumhverfi eru almennt öryggi, gott samfélag og vinaleg samskipti efst á lista. Nálægð við verslanir, náttúru og tengingar við gönguleiðir skipta þátttakendur einnig miklu máli heilt á litið. Bent er á það í mánaðarskýrslu HMS að áherslur taki þó eðlilega breytingum eftir æviskeiðum, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.

Í könnuninni var einnig spurt um viðhorf til þéttingar byggðar í nánasta nærumhverfi svarenda. Meirihluti íbúa höfuðborgarsvæðisins er andvígur þéttingu byggðar í nánasta nærumhverfi við heimili sitt. Yngri svarendur eru þó almennt jákvæðari í garð þéttingar en þeir sem eldri eru auk þess sem íbúar í miðborg Reykjavíkur (póstnúmeri 101) eru jákvæðari en þeir sem búa í úthverfum borgarinnar og í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Halla og Sólveig takast á um umdeildu launahækkunina – „Til háborinnar skammar“

Halla og Sólveig takast á um umdeildu launahækkunina – „Til háborinnar skammar“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Landsvirkjun greiðir 165 milljóna Bandaríkjadala arðgreiðslu í ríkissjóð

Landsvirkjun greiðir 165 milljóna Bandaríkjadala arðgreiðslu í ríkissjóð
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sólveig bendir á sturlaða staðreynd um rausnarlega launahækkun Höllu – „Siðferðislega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika“

Sólveig bendir á sturlaða staðreynd um rausnarlega launahækkun Höllu – „Siðferðislega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

KAPP og Laxey undirrituðu samning í Barcelona

KAPP og Laxey undirrituðu samning í Barcelona
Fréttir
Í gær

Ása segir frá augnablikinu þegar eiginmaðurinn játaði allt fyrir henni – „Hann virtist mjög taugaóstyrkur“

Ása segir frá augnablikinu þegar eiginmaðurinn játaði allt fyrir henni – „Hann virtist mjög taugaóstyrkur“
Fréttir
Í gær

Björgun Jóns Péturs í gær rataði í dagbók lögreglunnar – „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir“

Björgun Jóns Péturs í gær rataði í dagbók lögreglunnar – „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir“