fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Skoða megi atburði dagsins sem fyrirboða um framtíð Grænlands og ekki ólíklegt að Ísland komi þar við sögu

Ritstjórn DV
Laugardaginn 3. janúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, segir að aðgerðir Bandaríkjahers í Venesúela í morgunsárið marki nýja tíma. Fólk muni minnast ársins 2026 sem ársins þar sem allt breyttist.

Bandaríkjaher gerði umfangsmiklar loftárásir á Venesúela snemma í morgun og tók forseta landsins, Nicolás Maduro, og eiginkonu hans höndum og fluttu þau frá landinu.

Kristinn segir árásirnar fyrirboða um framtíð Grænlands og telur ekki ólíklegt að Ísland muni þar spila hlutverk.

„Mesta herveldi heims hefur nú formlega notað sprengjur sínar til þess að slátra alþjóðalögum endanlega og allri reglu í heiminum. Aflið mun hér eftir ráða hindrunarlaust. Skoða má atburði dagsins sem fyrirboða um framtíð Grænlands, þar sem aðstaða Bandaríkjahers á Íslandi verður að líkindum notuð í aðgerðum ef Grænland verður ekki afhent möglunarlaust.“

Eins hafi Bandaríkin gefið skýrt merki til annarra valdamikilla ríkja um hvað megi. Kínverjar séu farnir að hringsóla Taívan í stærstu heræfingu sinni til þessa og munu þeir líta á aðgerðir Bandaríkjahers í morgun sem grænt ljós á beinar hernaðaraðgerðir þar sem Kína muni aftur sölsa undir sig eyjuna. Eins hafi Trump sent skilaboð til Rússa um að innrás þeirra í Úkraínu sé eðlileg og réttmæt.

„Árið 2026 verður minnst sem ársins þar sem allt breyttist þó að aðdragandinn hafi verið ljós og ferlið langt – að minnsta kosti aldarfjórðungur. Smáríki hafa nú litlar bjargir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova