fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Trump trylltist við spurningar blaðakonu – „Róaðu þig, svínka“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 18. nóvember 2025 14:30

Donald Trump lét blaðakonuna Catherine Lucey heyra það.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, tryllist gjörsamlega á dögunum undan ágengum spurningum blaðakonu frá Bloomberg-fréttaveitunni og lét óhróðurinn rigna yfir hana. Atvikið átti sér stað þann 14. nóvember síðastliðinn um borð í Air Force One, flugvél forsetans, en Daily Mail greindi frá atvikinu nú fyrir stundu.  Umrædd blaðakona, Catherine Lucey, gekk þar á Trump og krafðist svara varðandi vandræðaganginn með Epstein-skjölin.

„Róaðu þig, róaðu þig, svínka,“ öskraði Trump en þetta er víst ekki í fyrsta sinn sem umrædd blaðakona kemur honum úr jafnvægi.

Atvikið er talið til marks um hversu erfitt og lýjandi Epstein-málið hefur reynst Trump enda er Bandaríkjaforseti sagður hundfúll með þá stefnu sem málið hefur tekið. Talið er að fulltrúaþing Bandaríkjanna muni kjósa um frumvarp sem kveður á um birtingu alla skjalanna síðar í dag, með yfirgnæfandi meirihluta, og þaðan fer málið til öldungardeildar þingsins og að endingu til staðfestingar hjá Trump.

Trump hefur reynt að koma í veg fyrir birtingu skjalanna frá því að hann tók við forsetaembættinu að nýju en varð svo að viðurkenna ósigur og leggja blessun sína yfir birtinguna og lofa því að hann myndi staðfesta lögin yrði það vilji beggja þingdeilda.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“
Fréttir
Í gær

Pálmi Gests hissa á umræðunni: „Fíflunum hefur fjölgað með samfélagsmiðlunum“

Pálmi Gests hissa á umræðunni: „Fíflunum hefur fjölgað með samfélagsmiðlunum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lokatölur úr Reykjavík – Sjálfstæðisflokkurinn tvímælalaus sigurvegari borgarstjórnarkosninganna

Lokatölur úr Reykjavík – Sjálfstæðisflokkurinn tvímælalaus sigurvegari borgarstjórnarkosninganna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ