

Þórhallur Gunnarsson, stjórnendaráðgjafi og -þjálfari hjá Góð samskipti, fagnar 62 ára afmæli í dag. Í tilefni dagsins deilir hann því að hann er að opna Klakinn stúdíó.
„Ég ætla í barnslegri gleði að deila þessu með ykkur: Ég er í þessum töluðu orðum að opna nýtt stúdíó sem heitir Klakinn Stúdíó. Klakinn Stúdíó (skýrt í höfuðið á kettinum okkar) er mjög vel búið hljóð og myndver.“
Vefslóðin er klakinnstudio.is. Þar má einnig finna nýjan sjónvarps/hlaðvarpsþátt Bókakjallarinn og eru fyrstu þrír þættirnir komnir í loftið en Þórhallur segir þá verða samtals 24 fyrir áramót. Þættina má líka finna á Spotify og Youtube undir Bókakjallarinn.
„Einstaklega skemmtilegir viðmælendur sem ræða uppáhaldsbækurnar sínar á ólíkum æviskeiðum og svo fer spjallið í allar áttir.“
„Maður gerir ekkert einn“ bætir Þórhallur við og þakkar þeim sem veittu honum aðstoð í ferlinu: eiginkonu sinni Brynju Nordquist, dótturinni Gunni og tengdasyninum Gulla, Ívari Fannari tökumanni og pródúsent og Bryndís Örnu sem týrir upptökum og eftirvinnslu þáttanna, auk Völu Matt og Oliver Nordquist fyrir góð ráð og stuðning.
Þórhallur hvetur þá sem eiga þann draum að búa til hlaðvarps eða sjónvarpsþátt að senda póst á klakinnstudio@gmail.com og hann aðstoði viðkomandi.
„Þótt gaman sé að hampa sjálfum sér er ekkert toppar bestu afmælisgjöf sem ég hef fengið en barnabarnið mitt hún Tinna Vigdís kom í heiminn þennan dag fyrir 15 árum. Til hamingju með afmælið elsku Tinna Vigdís.“