fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
433Sport

Rashford tjáir sig um framtíðina eftir að hafa landað titli

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 11. maí 2026 10:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marcus Rashford segist vilja vera áfram hjá Barcelona eftir frábært tímabil á láni frá Manchester United.

Rashford varð í gær spænskur meistari með Barcelona eftir 2-0 sigur á Real Madrid þar sem Englendingurinn skoraði glæsilegt aukaspyrnumark.

Barcelona hefur kauprétt á Rashford upp á 26 milljónir punda, en óvíst er hvort félagið muni virkja ákvæðið vegna launakostnaðar leikmannsins. Einnig hefur verið rætt og ritað um að hann gæti komið aftur á láni.

Rashford var spurður út í framtíð sína eftir leikinn og svaraði á léttu nótunum.

„Ég veit það ekki. Ég er enginn töframaður, en ef ég væri það myndi ég velja að vera áfram hér,“ sagði Englendingurinn.

Sóknarmaðurinn hefur skorað 14 mörk og lagt upp önnur 14 á tímabilinu og segist njóta sín vel hjá félaginu.

„Ég kom hingað til að vinna titla. Þetta lið á eftir að vinna mikið meira á næstu árum og það væri sérstakt að vera hluti af því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sonur Wayne Rooney vekur mikla athygli – Helmassaður þrátt fyrir ungan aldur

Sonur Wayne Rooney vekur mikla athygli – Helmassaður þrátt fyrir ungan aldur
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hefur ekki mátt hafa samskipti við konur eða unglinga í þrjú ár

Hefur ekki mátt hafa samskipti við konur eða unglinga í þrjú ár
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Arsenal hefur sent inn fyrirspurn

Arsenal hefur sent inn fyrirspurn
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Messi skoraði í sigri á Íslandi í nótt

Messi skoraði í sigri á Íslandi í nótt
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Margt bendir til að stjörnuparið hafi tekið saman á ný – Neitar ásökunum um framhjáhald

Margt bendir til að stjörnuparið hafi tekið saman á ný – Neitar ásökunum um framhjáhald
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ofurtölvan spáir í HM – Áframhaldandi sársauki fyrir þá ensku

Ofurtölvan spáir í HM – Áframhaldandi sársauki fyrir þá ensku
433Sport
Í gær

Veðbankar ekki okkur hliðhollir í kvöld – Stjarnfræðilegur stuðull á tvo íslenska sigra

Veðbankar ekki okkur hliðhollir í kvöld – Stjarnfræðilegur stuðull á tvo íslenska sigra
433Sport
Í gær

Newastle að festa kaup á efnilegum markverði sem fyllir í skarð Ramsdale

Newastle að festa kaup á efnilegum markverði sem fyllir í skarð Ramsdale