fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
Fréttir

Menn á sjötugsaldri ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl – Fluttu kókaín í pottum með Norrænu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 19. ágúst 2025 13:30

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlendur maður með íslenska kennitölu, maður frá Dóminíska lýðveldinu og maður frá Spáni, hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Eru þeir sakaðir um að hafa staðið að innflutningi á rúmlega 3 kg af kókaíni frá Spáni til Íslands, en efnin voru ætluð til söludreifingar hér á landi.

Mennirnir eru nokkuð við aldur miðað við það sem algengt er í afbrotum af þessu tagi. Sá sem býr á Íslandi er 63 ára gamall, sá sem er frá Dóminíska lýðveldinu er 56 ára og Spánverjinn er 66 ára gamall.

Mennirnir voru handteknir sunnudaginn 13. apríl er lögreglan stöðvaði bíl þeirra á Kjalarnesi en þeir voru á leiðinni að Gistihúsinu Móum á Akranesi. Þar ætluðu þeir að fjarlægja fíkniefnin úr pottunum og undirbúa söludreifingu þeirra.

Spánverjinn flutti fíkniefnin til Íslands, falin í þremur pottum í ferðatösku, með ferjunni Norrænu sem kom til Seyðisfjarðar 9. apríl. Daginn eftir flutti hann fíkniefnin til Reykjavíkur á gistiheimil í Lágmúla þar sem hann dvaldist. „Íslendingurinn“ sótti hann þangað sunnudaginn 13. apríl og sama dag fékk Spánverjinn 5.000 evrur millifærðar á reikninginn sinn fyrir milligöngu dóminíska mannsins. Sá útvegaði efnin í gegnum óþekktan mann á Spáni og afhenti Spánverjanum þau efni þar í landi föstudaginn 4. apríl. Jafnframt lét hann honum í té leiðbeiningar um ferðatilhögun og meðferð efnannna hér á landi.

Maðurinn sem býr hérlendis kom að skipulagningu verksins meðal annars með því að útvega verkfæri til að losa fíkniefnin úr pottunum og koma þeim í söludreifingu. Hann tók jafnframt 5.000 evrur í reiðufé út úr hraðbanka og greiddi dóminíska manninum 2.000 evrur fyrir sinn hlut í verkefninu.

Aðalmeðferð í málinu verður við Héraðsdóm Reykjavíkur næstkomandi föstudag, þann 22. ágúst.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Sólveig bendir á sturlaða staðreynd um rausnarlega launahækkun Höllu – „Siðferðislega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika“

Sólveig bendir á sturlaða staðreynd um rausnarlega launahækkun Höllu – „Siðferðislega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

KAPP og Laxey undirrituðu samning í Barcelona

KAPP og Laxey undirrituðu samning í Barcelona
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Dagur B. segir miðborgina hafa gengið í endurnýjun lífdaga – Sjáðu fjölda „fyrir og eftir“ mynda

Dagur B. segir miðborgina hafa gengið í endurnýjun lífdaga – Sjáðu fjölda „fyrir og eftir“ mynda
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Tók lögreglumann hengingartaki í bílakjallara og þrengdi að öndunarvegi hans

Tók lögreglumann hengingartaki í bílakjallara og þrengdi að öndunarvegi hans