fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Gáði ekki að sér og sigldi á hafnarkantinn

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 12. desember 2024 11:30

Faxagarður í Reykjavíkurhöfn. Mynd: Skjáskot/Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur sent frá sér lokaskýrslu vegna atviks sem varð þegar hvalaskoðunarskipinu Amelía Rose var siglt á hafnarkant Faxagarðs í Austurhöfn Reykjavíkurhafnar. Er það niðurstaða nefndarinnar að skipstjórinn hafi ekki gáð að sér og því siglt skipinu á hafnarkantinn.

Á þessari mynd má sjá bátnum siglt á hafnarkantinn. Mynd: Rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Atvikið varð síðastliðið sumar í góðu veðri og góðu skyggni.

Um klukkan 13 var skipinu siglt af stað í skoðunarferð frá Ægisgarði í gömlu höfninni í Reykjavík. Ægisgarður er til vesturs frá Faxagarði og miðað við kort ætti að vera greið leið fyrir skip og báta á milli þessara tveggja hafnargarða. Alls voru 64 farþegar og 4 manna áhöfn um borð í skipinu.

Þegar skipið var komið frá Ægisgarði og búið að snúa því til að halda á haf út tók það skyndilega krappa stjórnborðsbeygju (til hægri) og sigldi á enda hafnarkants Faxagarðs.

Í skýrslunni segir að mikið högg hafi komið á skipið sem var komið á þriggja hnúta ferð en ekki sé vitað til þess að farþegar eða skipverjar hafi slasast. Skipstjórinn hafi strax látið athuga hvort skemmdir hefðu orðið og hvort farþegar hefðu slasast. Hafi hann boðið þeim farþegum sem vildu að fara frá borði og hafi nokkrir þeirra þegið það.

Skipstjórinn hafi sagt að hann hafi ætlað að hafa stýrið miðskipa þegar hann sigldi út úr höfninni og haft það stillt þannig. Hann hafi brugðið sér frá til að sinna öðrum verkum og talið að hann hefði rekið sig í rafmagnsstýri skipsins sem hafi fært stýrið í stjórnborða og þá beygt með þeim afleiðingum að skipinu var siglt á hafnarkantinn.

Ekki með athyglina í lagi

Í greiningarhluta skýrslunnar segir að þrátt fyrir að skipstjóri hefði verið í brúnni hefði hann ekki verið með athyglina við siglingu skipsins. Af skoðun á myndbandsupptökum af atvikinu megi ráða að tíminn sem leið frá því að Amelía Rose stefndi beint úr höfn og þar til það byrjaði að beygja hafi verið um 45 sekúndur. Þá hafi stýrið farið yfir í stjórnborða og ásigling verið óumflýjanleg.

Við siglingu inn og út úr höfn þurfi að gæta sérstakrar árvekni til að geta brugðist við óvæntum og ófyrirséðum aðstæðum.

Niðurstaða skýrslunnar er því sú að ástæða ásiglingarinnar sé skortur á árverkni skipstjórans við siglingu úr höfninni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“

Gísli Marteinn talar tæpitungulaust um Borgarlínu og lætur Hildi heyra það – „Make Hildur great again“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna

Þótti meintur kinnhestur Ástráðs alvarlegt mál en ver nú ofbeldismyndband eigin flokksmanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð