Mörg þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista gegn nýja forsætisráðherra Íslands, Bjarna Benediktssyni.
„Bjarni Benediktsson nýtur lítils trausts meðal almennings. Fyrir einungis fjórum mánuðum var niðurstaða Maskínu að: „Þrír af hverjum fjórum bera lítið traust til utanríkisráðherra samkvæmt nýrri skoðanakönnun.“ Bjarni Benediktsson nýtur ekki okkar stuðnings sem forsætisráðherra,“ kemur fram á síðu rafrænu undirskriftasöfnunarinnar á Ísland.is.
Söfnunin var sett af stað í gær og bætast við nýjar undirskriftir á hverri mínútu. Þegar fréttin er skrifuð hafa 7889 manns skrifað undir.
Sjá einnig: Ný ríkisstjórn sögð nánast frágengin – Bjarni verður forsætisráðherra
Uppfært 09:31
Það bætist hratt við listann og er fjöldi undirskrifta kominn yfir átta þúsund.