fbpx
Mánudagur 13.maí 2024
Fréttir

Þetta er nafn mannsins sem var dæmdur fyrir að frelsissvipta og nauðga vændiskonu

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. janúar 2023 14:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Freyr Björnsson, var í desember dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir vændiskaup, frelsissviptingu, nauðgun og sérstaklega hættulega líkamsárás. Nafn Vilhjálms, sem er á þrítugasta aldursári,  var afmáð úr dómnum þegar hann var birtur á vefsíðu dómstóla en dómstóllinn hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að rétt væri að birta nafnið samkvæmt reglum.

Samkvæmt frétt Vísis í dag kom fram í svari dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, Ingibjargar Þorsteinsdóttur, til miðilsins að gefa beri út dóminn með nafni dómfellda samkvæmt reglum dómstólasýslunnar. Því verði nafnið aftur fært inn í dóminn og dómurinn birtur að nýju sem mun gerast formlega innan tíðar.

Réðst á konuna eftir hún neitaði endurgreiðslu

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum er málsatvikum lýst með þeim hætti að Vilhjálmur hafi fengið konuna til sín til þess að kaupa af henni vændi. Hann hafi greitt fyrir ákveðna þjónustu í ákveðinn tíma en að þeim tíma liðnum vildi hann fá endurgreitt.

Þegar konan sagðist ekki geta endurgreitt honum réðst hann að henni með ofbeldi, meinaði henni útgöngu og svipti hana frelsi í minnst þrjár stundir. Á þeim tíma þvingaði hann konuna ítrekað til samræði í leggöng, endaþarm, munnmök og til að sleikja á honum endaþarminn.

Hann tók hana hálstaki minnst tvisvar og sló hana endurtekið í andlit og búk með þeim afleiðingum að konan hlaut brot á augnatóft og á vanga- og kjálkabeinum, mar á andliti, hálsi og upphafnlegg. Húðblæðingar á hálsi og punktblæðingar í andliti og slímhúð augna og í munni og þar að auki yfirborðsáverkar á andlit og búk.

Vilhjálmur játaði brotin að hluta en krafðist sýknu af ákæruliðum er vörðuðu frelsissviptingar, nauðgunar og líkamsárásar að hluta. Hann játaði að hafa tekið konuna hálstaki einu sinni og slegið hana í andlitið með handarbaki.

Samkvæmt ákæru í málinu greiddi Vilhjálmur konunni 50 þúsund krónur fyrir vændið. Nánar má lesa um ákæruna hér fyrir neðan.

Sá einnig: Frelsissvipti vændiskonu og misþyrmdi henni hrottalega

Uppfært: 14:25 – Dómurinn hefur nú verið birtur að nýju með nafni Vilhjálms. Dóminn má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Yfirþjálfara fimleikadeildar Gróttu sagt upp störfum – Málið tengist þjálfunaraðferðum hjá umdeildum gestaþjálfara

Yfirþjálfara fimleikadeildar Gróttu sagt upp störfum – Málið tengist þjálfunaraðferðum hjá umdeildum gestaþjálfara
Fréttir
Í gær

Talið að Rússar geri út glæpamenn til að vinna skemmdarverk í Evrópu og Bandaríkjunum

Talið að Rússar geri út glæpamenn til að vinna skemmdarverk í Evrópu og Bandaríkjunum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Auði brugðið við að fylgjast með blindfullum útskriftarnemum dimmitera í miðbænum – „Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund“

Auði brugðið við að fylgjast með blindfullum útskriftarnemum dimmitera í miðbænum – „Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rekstur Base Parking virðist vera að sigla í strand

Rekstur Base Parking virðist vera að sigla í strand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rússar hafa opinberað nýjar upplýsingar um fyrstu árásina á Kerch-brúna – Myndband

Rússar hafa opinberað nýjar upplýsingar um fyrstu árásina á Kerch-brúna – Myndband
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Þó það sé ekki al­veg hægt að vera viss um allt í þessu þá er þetta bara staðan“

„Þó það sé ekki al­veg hægt að vera viss um allt í þessu þá er þetta bara staðan“