Karlmaður var í september dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot.
Var hann annars vegar ákærður fyrir að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni rúmlega 4,5 kíló af amfetamíni með 70-72 prósent styrkleika og tæplega lítra af amfetamínvökva. Fíkniefnin fundust við leit í og ofan á frystikistu.
Manninum var hins vegar gert að sök að hafa haft í vörslum sínum tvö sverð og útdraganlega kylfu sem fannst við húsleit. Eins tvö handjárn, lásboga og gasskotvopn.
Maðurinn játaði sakir en krafðist vægustu refsingar sem lög heimili. Hann hafði ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi áður samkvæmt sakavottorði.
Dómari leit til þess að í málinu væri um að ræða töluvert magn fíkniefna af miklum styrkleika. Hins vegar bendi gögn til þess að maðurinn hafi ekki verið eigandi efnanna utan þeirra sem voru í neysluskömmtum. Til þessa var horft við ákvörðun refsingu sem og til þess að maðurinn hefur farið í meðferð vegna áfengis- og vímuefnavanda eftir brotið og leitast við að koma lífi sínu á réttan kjöl.
Dómari ákvað því að hæfilegt fangelsi væru þrjú ár og sex mánuðir en frá þessari refsingu dregst rúmlega vikulangt gæsluvarðhald sem maðurinn mátti sæta.