fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Íslendingar aðstoðuðu Úkraínumenn í nótt – Fraktflugvél flaug með búnað að landamærunum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 28. febrúar 2022 12:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslensk stjórnvöld sendu fraktflugvél með búnað til Úkraínu í nótt. Flogið var frá Slóveníu í samvinnu við slóvensk stjórnvödl og til áfangastaðar sem liggur nálægt landamærum Úkraínu.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.

Var leigð fraktflugvél frá Atlanta en ekki kemur skýrt fram í tilkynningunni hvers konar búnaður var fluttur til Úkraínu. Tilkynningin er eftirfarandi:

„Fraktflutningavél á vegum íslenskra stjórnvalda flutti búnað til notkunar í Úkraínu í nótt. Flogið var frá Slóveníu í samvinnu við þarlend yfirvöld til áfangastaðar nálægt landamærum Úkraínu.

Á síðustu dögum hefur borist ákall um aðstoð frá Úkraínu vegna neyðarástands í landinu í kjölfar innrásar rússneska hersins. Beiðni frá úkraínskum stjórnvöldum barst til vina- og bandalagsþjóða þar á meðal Íslands. Var þar óskað eftir ýmis konar aðstoð, hergögnum, hlífðarbúnaði, hjúkrunarvörum og fleiru. Vilji íslenskra stjórnvalda hefur staðið mjög eindregið til þess að leggja úkraínsku þjóðinni lið, en eðli máls samkvæmt hefur Ísland ekki yfir að ráða hergögnum eða sérhæfðum búnaði sem mest þörf er talin á við þær aðstæður sem þar eru uppi nú.

Tekin var ákvörðun um að leggja til not af fraktflugvél sem tekin var á leigu af flugfélaginu Atlanta, en ákaflega brýn þörf er á slíku liðsinni. Heppnaðist framkvæmdin í alla staði vel og verður búnaðinum sem var um borð komið í dreifingu til þeirra sem á þurfa að halda.

Þá hefur Ísland svarað kalli Úkraínu um mannúðaraðstoð með því að heita einnar milljón evra framlagi til alþjóðlegs mannúðarstarfs.

„Íslensk stjórnvöld munu halda áfram að leita leiða til þess að koma úkraínsku þjóðinni til aðstoðar með þeim hætti sem er á okkar færi og í samræmi við þeirra óskir og þarfir,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Allt á suðupunkti í Kópavogi í aðdraganda kosninga: „Þetta heitir misbeiting valds“

Allt á suðupunkti í Kópavogi í aðdraganda kosninga: „Þetta heitir misbeiting valds“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ný leyniþjónusta í farvatninu í Svíþjóð – Ætlað að líkjast fremur MI6 en CIA

Ný leyniþjónusta í farvatninu í Svíþjóð – Ætlað að líkjast fremur MI6 en CIA
Fréttir
Í gær

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann
Fréttir
Í gær

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“
Fréttir
Í gær

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
Fréttir
Í gær

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg