fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Sandra segir þetta vera eitt stærsta mál jafnréttisbaráttu dagsins í dag – „Slíkt er óþolandi óréttlæti“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 11. janúar 2022 20:00

Sandra B. Franks, formaður SJúkraliðafélags Íslands. - Mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ein mesta kvennastétt í landinu, og jafnframt ein sú mikilvægasta, eru sjúkraliðar. Um 98% sjúkraliða á Íslandi eru konur. Óumdeilt er það mikilvægi sem sjúkraliðar gegna hjá heilbrigðisstofnunum um allt land.“

Svona hefst pistill sem Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, skrifar en pistillinn birtist á Vísi. Í honum ræðir Sara um kynbundinn launamun sem hún segir vera milli starfa sem konur og karlar vinna.

„Heilbrigðisþjónustan getur ekki verið án sjúkraliða og hefur það sést vel á tímum Covid-faraldursins. Þrátt fyrir það glíma sjúkraliðar við kerfisbundna mismun þegar kemur að launum. Kynbundnin launamunur milli starfa sem konur helst vinna og starfa sem karlar vinna er með öllu óásættanlegur.“

Sandra segir að ljóst sé að búið sé að ná talsverðum árangri í að vinna gegn kynbundnum launamun milli sambærilegra starfa. „Hins vegar eigum við talsvert lengra í land þegar kemur að kynbundnum launamun sem birtist í kynjaskiptum vinnumarkaði,“ segir hún.

„Rannsóknir sýna að laun eru almennt lægri hjá þeim starfsstéttum þar sem konur eru í meirihluta. Sjúkraliðar bera því mjög skarðan hlut af þessari mismunun. Slíkt er óþolandi óréttlæti og ber stjórnvöldum og stofnunum þess að bregðast við því, bæði þegar kemur að kjarasamningum en einnig stofnanasamningum.“

Sandra segir sérstakan starfshóp stjórnvalda og BSRB um endurmat á störfum kvenna  hafa lagt til að stofnaður verði aðgerðahópur um launajafnrétti.

„Þá er lagt til að ráðist verði í greiningu á vandanum ásamt aðgerðum sem miða við að aðstoða atvinnurekendur við að uppfylla lagaskilyrði um jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf. Hins vegar er ljóst að vandinn krefst markvissra aðgerða.“

„Stærsta mál jafnréttisbaráttu dagsins í dag“

Í pistlinum segir Sandra að Sjúkraliðafélag Íslands hafi ályktað um að gripið verði tafarlaust til aðgerða sem miða að því að verðmæti starfa séu metin að jöfnu, hvort sem þeim er sinnt að mestu af konum eða körlum.

„Það er ekki nóg að tryggja sömu laun kynjanna fyrir sömu vinnu. Því hin hliðin á teningnum er að störf sem eru að langstærstum hluta unnin af konum eru launalægri en störf sem eru unnin að langstærstum hluta af körlum. Það sem ýtir undir þetta ólíka virðismat starfa er að konur frekar en karlar vinna í nánum samskiptum við annað fólk sem skapar óáþreifanleg verðmæti fyrir samfélagið. Hefðbundin störf sem karlar helst vinna fela hins vegar í sér sköpun á áþreifanlegum verðmætum.“

Að lokum segir Sandra að ekki sé hægt að tala um launajafnrétti kynjanna á meðan störf sem konur eru í meirihluta að vinna eru að fá lægri laun. „Það er því tómt mál að tala um launajafnrétti kynjanna á meðan störf sem eru unnin af 98% konum eru metin lægri en önnur hefðbundin störf sem karlar vinna,“ segir hún.

„Þetta er eitt stærsta mál jafnréttisbaráttu dagsins í dag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala