Jón Magnússon, lhæstaréttarögmaður og fyrrum alþingismaður, vill að gert sé grein fyrir þjóðerni brotamanna í umfjöllun fjölmiðla um glæpi og voðaverk. Þetta kemur fram í færslu á bloggsíðu lögmannsins en Hringbraut greindi fyrst frá.
„Fyrir nokkrum árum tóku fréttamiðlar upp þann ósið, að greina ekki frá því hvaðan glæpamenn kæmu eða segja á þeim nauðsynleg deili. Sagt var að það væri óþarfi og aðalatriðið væri að bregðast við afbrotinu, en þjóðerni viðkomandi skipti engu máli. Þessar röksemdir eru afsökun á því, að gera ekki grein fyrir hlutum eins og þeir eru. Stjórnvöld og fréttaelítan vilja leyna ákveðnum staðreyndum fyrir fólkinu í landinu,“ skrifar Jón.
Tekur hann dæmi um fréttir af hnífaárás sem átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur um helgina og að í vissum umfjöllunum hafi verið greint frá því að sá er framd ódæðið hafi verið Íslendingur.
„Vonandi veit þetta á breytingu hjá fréttaelítunni, að í framtíðinni verði gerð grein fyrir þjóðerni brotamanns og jafnvel frekari deili. Allt eru það nauðsynlegar upplýsingar sem eiga erindi við almenning í lýðræðisríki. Eða verður það þannig, að einungis verði sagt frá því þegar Íslendingur brýtur af sér og við getum þá gengið út frá því, að þegar ekki er gerð grein fyrir þjóðerni brotamanns, að þá sé ekki um Íslending að ræða?“ spyr Jón.
Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur og lektor við Háskólann á Akureyri, var á dögunum í viðtali við RÚV um svipað málefni. Þar vitnaði hún í erlendar rannsóknir þar sem fram kom að þær sýni að afbrot sem eru framin af útlendingum veki alltaf meiri óhug íbúa heldur en afbrot sem eru framin af innfæddum. Inntak viðtalsins var að fara þyrfti varlega í slíka umræðu um þjóðerni til þess að ala ekki á fordómum gagnvart innflytjendum.