fbpx
Mánudagur 13.maí 2024
Fréttir

Gunnar smíðakennari reynir að staðsetja sig í metoo-umræðunni – „Kannski er ég þjakaður af erfðasynd“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 10. maí 2021 14:00

Gunnar smá myndina Promising Young Woman og hún vakti hann til umhugsunar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Dan Wiium, smíðakennari, fór í bíó og sá myndina Promising Young Woman. Finnst honum myndin afar viðeigandi fyrir umræðu síðustu vikunnar. Hann skrifar um þetta í pistli sem birtist hjá Vísi.

„Í kvöld fórum við hjónin og sáum hina ótextuðu Promising Young Woman í Laugarásbíó. Hún var ótextuð líklega vegna þess að „einhverjum“ hefur þótt viðeigandi að setja hana skyndilega í sýningu í kjölfar atburða og stemningu liðinar viku. Og viti menn, vægast sagt viðeigandi. Rosaleg ræma sem tikkar í öll boxin, allt það sem ég hef lesið í fjölmiðlum þessa viku kemur þarna fram.“ 

Gunnar segir að hann hafi átt erfitt með að finna sinn stað í metoo umræðunni.

„Ég hef átt erfitt með að staðsetja mig í þessu öllu saman með #metoo, eins og það sé innprentað í dna’ið mitt einhverskonar geranda meðvirknis strengur. Kannski er strengurinn afleiða eða karma ofbeldis karlmanna í garð kvenna í gegnum árþúsundir.“

Greinilegt er að myndin og umræðan hafi vakið Gunnar til umhugsunar um heimsýn sína sem karlmaður.

„Kannski er ég þjakaður af erfðasynd sem hefur skert sýn mína eða aftrað mér hvað varðar hreina afstöðu.

Einhverskonar innprentuð skömm eða sekt fyrir brot minna meðbræðra, forfeðra.

Kannski hefur þessi erfðasynd skert sýn mína á möguleg eigin brot gegn konum í þessu lífi. Þetta eru spurningar sem mér þykir vert að spyrja. Ég þarf greinilega að breytast, þroskast. Hvenær var það normið eiginlega að ég ætti ekki að breytast, „þetta hefur alltaf verið svona“ hugarfar. Ég þarf að breytast og vaxa sem manneskja og með því axla ég ábyrgð og raunverulega skila skömminni sem situr á mér eins og mara.“

Hann segir metoo umræðuna gefa honum færi á að líta í eigin barm

„Metoo byltingin er hér svo ég geti skoðað og rýnt, rýnt í eigin hugsanir, skúmaskot, samskipti og svo framvegis.“

Það hafi þó verið furðulegt hversu léleg mæting var á myndina í Laugarásbíó.

„Í stóra salnum í Laugarásbíó í kvöld voru skítnar 12 hræður. Miðað við hvað allir geta haft skoðanir og þóst vita allan fokking skít um sekt og sakleysi, ábyrgð og heiðarleika, finnst mér að salurinn hefði átt að vera fullur í kvöld.

Það komin tími til breytinga, heilunar.

Það er komin tími samruna og kærleiks en til þess þarf sannleikurinn að stíga fram. Hvernig komum við fram strákar? Hvernig hefur þú hagað þér strákur? Hvað hefur þú að fela strákur?

Sannleikurinn gerir mig frjálsan og megi ég finna hann nú.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tíkin Tita var drepin á Laugarási – „Tímaspursmál hvenær þessir hundar ráðast á eitthvað annað“

Tíkin Tita var drepin á Laugarási – „Tímaspursmál hvenær þessir hundar ráðast á eitthvað annað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brottfararstyrkir til umsækjenda um alþjóðlega vernd margfölduðust á síðasta ári

Brottfararstyrkir til umsækjenda um alþjóðlega vernd margfölduðust á síðasta ári
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Auði brugðið við að fylgjast með blindfullum útskriftarnemum dimmitera í miðbænum – „Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund“

Auði brugðið við að fylgjast með blindfullum útskriftarnemum dimmitera í miðbænum – „Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rekstur Base Parking virðist vera að sigla í strand

Rekstur Base Parking virðist vera að sigla í strand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Saka Rússa um að nota efnavopn

Saka Rússa um að nota efnavopn
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Svört skýrsla um rekstur hestamannafélagsins Fáks – Fullyrðingar um svartar launagreiðslur, ólöglegt vinnuafl og óeðlileg vildarkjör – Formaður félagsins segir skýrsluna einhliða og ekki gefa rétta mynd

Eldgosinu er lokið