Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem getur ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.
Vísir.is segir að um einbýlishús sé að ræða og sé það alelda. Tilkynnt var um eldinn klukkan 06:40 og var allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sent á vettvang. Ekki er talið að neinn sé í húsinu.