Í eina tíð notaði fólk einkanúmer á bíla til þess að kom hnyttnum skilaboðum, oft í groddalegri kantinum, á framfæri. Þar ber einkanúmerið HR1SV1 (hreinn sveinn) höfuð og herðar yfir önnur númer.
Á dögunum vakti fréttasíða Eiríks Jónssonar athygli á hreinræktaðri hatursorðræðu á númeraplötu bíls. Númerið, IH8MYX, er kannski ekki auðskiljanlegt fyrir alla en það myndi útleggjast sem „ég hata mína fyrrverandi“.
Samkvæmt heimildum DV tók fjölskyldufaðir, sem stendur í erfiðum skilnaði, sig til og fjárfesti í einkanúmerinu. Ekki er annað hægt en að viðhafa uppáhaldsorð Donalds Trump um málið: „Sorglegt“.