Arion banki gjaldfærði 599 milljónir króna vegna kaupaukagreiðslna í fyrra og Íslandsbanki 378 milljónir
Arion banki skuldbatt sig í fyrra til að greiða 599 milljónir króna í kaupaukagreiðslur til rúmlega hundrað starfsmanna fyrirtækisins og dótturfélaga þess. Samstæðan gjaldfærði þar af 461 milljón vegna bónusa til starfsmanna bankans. Höskuldi H. Ólafssyni bankastjóra var lofað 7,2 milljónum ofan á 56 milljóna króna árslaun. Níu framkvæmdastjórum bankans var úthlutað samtals 26,5 milljónum í árangurstengdar greiðslur.
Samkvæmt ársreikningi samstæðu Arion banka fyrir árið 2015, sem fyrirtækið birti á miðvikudag, eru greiðslurnar byggðar á rekstrarárangri hennar fyrir árið 2014. Gjaldfærði samstæðan alls 599 milljónir vegna kaupaukakerfisins sem var innleitt í júlí 2013. Um 30% upphæðanna eru í formi launatengdra gjalda og greiðslu 40% kaupaukans er frestað um þrjú ár í samræmi við reglur Fjármálaeftirlitsins (FME) um árangurstengdar greiðslur fjármálafyrirtækja.
Heildargjaldfærslan í fyrra var 57 milljónum hærri en árið 2014 þegar Arion lofaði starfsmönnum sínum alls 542 milljónum í bónusa að launatengdum gjöldum meðtöldum. Í umfjöllun DV í febrúar í fyrra um kaupaukagreiðslur bankans árið 2014 kom fram að þær jukust þá um 48 milljónir frá árinu á undan.
Arion banki var rekinn með 49,7 milljarða króna hagnaði á síðasta ári. Hagnaður bankans er sá þriðji mesti í krónum talið í Íslandssögunni á eftir Kaupþingi árin 2006 og 2007. Hagnaður Kaupþings árið 2006 nam 85,6 milljörðum og 2007 skilaði rekstur hans jákvæðri afkomu upp á 70 milljarða.
Alls störfuðu 1.147 manns hjá Arion banka og dótturfélögum í árslok 2015 og þar af 876 hjá bankanum. Launagreiðslur námu 11,5 milljörðum samanborið við 10,9 milljónir árið 2014. Framkvæmdastjórarnir níu fengu alls 254,7 milljónir í laun í fyrra eða 28 milljónir hver. Laun Höskuldar H. Ólafssonar bankastjóra hækkuðu um 7% og námu, eins og áður segir, alls 55,9 milljónum króna.
DV greindi síðasta þriðjudag frá gjaldfærslu Íslandsbanka vegna kaupaukagreiðslna á síðasta ári. Kom þá fram að bankinn lofaði þá að greiða alls 378 milljónir króna í bónusa til starfsmanna fyrirtækisins og dótturfélaga þess. Birna Einarsdóttir bankastjóri fékk þá vilyrði fyrir 7,2 milljóna króna bónus sem bætist ofan á 44 milljóna árslaun hennar. Átta framkvæmdastjórum bankans var lofað alls 29 milljónum króna.
Íslandsbanki gjaldfærði alls 358 milljónir króna í árangurstengdar greiðslur til starfsmanna samstæðunnar árið 2014. Það ár útvíkkaði bankinn kaupaukakerfi sitt þannig það næði til um hundrað starfsmanna en árið 2013 náði það einungis til framkvæmdastjórnar fyrirtækisins. Framkvæmdastjórarnir átta fengu það ár vilyrði fyrir alls 22,4 milljónum, eða 2,8 milljónum hver starfsmaður. Árslaun Birnu Einarsdóttur námu þá 38,6 milljónum króna og hækkuðu því í fyrra um 13,2%.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði á síðasta ári fram frumvarp á Alþingi til breytinga á lögum um fjármálafyrirtæki. Töluverðar umræður urðu um þann hluta frumvarpsins sem sneri að kaupaukakerfum innan bankageirans en í því var lagt til að hluthafafundir fjármálafyrirtækja gætu greitt starfsmönnum bónusa sem næmu allt að heilum árslaunum. Frumvarpið fór í gegn síðasta vor eftir breytingartillögu sem leiddi til þess að hlutinn sem sneri að kaupaukum var fjarlægður. Í dag geta því kaupaukar að hámarki numið 25 prósentum af heildarlaunum starfsmanna samkvæmt reglum FME.