fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024

Stjörnuspá vikunnar – Stjörnumerkið segir til um hvað þú ættir að gera í sumarfríinu

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 21. júní 2020 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gildir 19. – 26. júní

stjornuspa

Hrútur
21. mars–19. apríl

Hrúturinn er metnaðarfullur og á líklega ALLAR útilegugræjur. Þér finnst hreyfing ómissandi hluti af fríinu, svo að sjálfsögðu tekur þú hjólið eða gönguskóna með. Eftir krefjandi hreyfingu átt þú allt gott skilið, jafnvel tvo kalda og grillaðan hammara.

stjornuspa

Naut
20. apríl–20. maí

Nautið er afar jarðbundið merki og nýtur sín best með tærnar í grasinu. Þú átt það til að verða örlítið hvumpin/n og því væri tilvalið fyrir þig að fara í frí þar sem þú gætir sofnað við vatnshljóð, einhvers staðar við strönd, læk eða foss. Heyrir þú niðinn? Ahhh!

stjornuspa

Tvíburar
21. maí–21. júní

Tvíburinn er mikil félagsvera þannig að þitt draumasumarfrí væri með fólkinu þínu. Þú ert til í hvað sem er, og svo lengi sem þú ert í góðum hópi þá ertu til í það. Þú hefur gaman að eigin tónlistarsmekk og ert líkleg/ur til að tryggja aðgengi að góðri tónlist. Kannski henda í spilakeppni líka.

stjornuspa

Krabbi
22. júní–22. júlí

Krabbinn er mikil fjölskylduvera og myndi helst vilja fara í frí með ALLRI fjölskyldu sinni. Þú gerir allt fyrir alla, þannig að sannkallað frí fyrir þig er að komast úr þeim aðstæðum að þurfa að bjarga deginum fyrir einhvern.

stjornuspa

Ljón
23. júlí–22. ágúst

Ljónið er eldmerki og sækir gjarna í ævintýri. Þú værir týpan til að plana sem minnst, leigja húsbíl og keyra þangað sem vindurinn segir þér að keyra. Þú talar við náttúruna. Láttu það eftir þér að hlusta á hjartað með tjald í skottinu og ástvini í bílnum.

stjornuspa

Meyja
23. ágúst–22 .sept

Þú, kæra Meyja, ættir ekki að fara í frí með Ljóninu. Því þú ert týpan sem planar ferðina í bak og fyrir og kýst jafnvel að fara í tilbúnar pakkaferðir. Og ekki sakar ef þú getur lært eitthvað nýtt um þann áfangastað sem þú ferð á og fuglana sem tilheyra þeim stað…

stjornuspa

Vog
23. sept–22. okt

Þú ert meiri dekurrófa en þú þorir að viðurkenna og ert klárlega týpan sem myndi kjósa „glamping“ fram yfir hefðbundna tjaldferð. Þú elskar náttúruna en vilt ekki pissa hvar sem er og vilt svo sannarlega drekka úr glerglasi. Smelltu dúknum og merkjavörubomsunum í skottið og skelltu þér af stað.

stjornuspa

Sporðdreki
23. okt–21. nóv

Sporðdrekinn er alltaf til í áskoranir og finnst það að ganga fimmvörðuhálsinn vera bara ágætis frí, eða jafnvel brimbrettaferð til Marokkó.
Hvernig væri að byrja á að hjóla til Hveragerðis?

stjornuspa

Bogmaður
22. nóv–21. des

Hvar fæ ég mest fyrir minnst? Þú ert ekki nískur, Bogi minn, heldur útsjónarsamur. Hvernig væri að skella sér á gott hóteltilboð með þriggja rétta og alles fyrir fjölskylduna? Ekki klikka á að taka nesti með í bílinn, því þú þolir ekki sjoppusamlokur.

stjornuspa

Steingeit
22. des–19. janúar

Steingeitin er vinnualki sem tekur sér sjaldan frí. En þegar þú loks gerir það þá hugsar þú ALLTAF „ég verð að gera þetta oftar“! Þú hefur gaman af sögulegum áfangastöðum og dreymir um að fara að skoða Kólosseum. Í millitíðinni mælum við að skoða minjarnar við Stöng í Þjórsárdalnum.

stjornuspa

Vatnsberi
20. janúar–18. febrúar

Vatnsberinn er merkið sem myndi njóta sín best virkilega einsamalt í fríi og fá mikið út úr því að skella sér í fjallgöngu með allt á bakinu og gista þar sem það þreytist, borða þegar það hentar og láta engan segja sér fyrir verkum.

stjornuspa

Fiskar
19. febrúar–20. mars

Allir Fiskar ættu að eiga sinn eigin sumarbústað og myndu nota hann mikið ef þeir ættu slíkan. Fiskurinn hefur gott að því að komast reglulega út úr bænum til þess að núllstilla sig. Fyrir þér væri garðrækt í eigin sumarbústað besta fríið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

98 ára úkraínsk kona gekk 10 km í skothríð til að sleppa frá Rússum – „Ég lifði síðari heimsstyrjöldina af og ég mun lifa þetta stríð af“

98 ára úkraínsk kona gekk 10 km í skothríð til að sleppa frá Rússum – „Ég lifði síðari heimsstyrjöldina af og ég mun lifa þetta stríð af“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Sauð upp úr hjá Dóru Björt og Ragnhildi Öldu – „Það er fáránlegt hvernig þú lætur. Þetta er alveg svakalegt með þig“

Sauð upp úr hjá Dóru Björt og Ragnhildi Öldu – „Það er fáránlegt hvernig þú lætur. Þetta er alveg svakalegt með þig“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Barcelona gæti ráðið Enrique á ný

Barcelona gæti ráðið Enrique á ný
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum
Hera úr leik
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Viðar segir að fullyrðing Guðmundar standist ekki – „Jájá, það er ástæða fyrir því að ég var ekki í hóp“

Viðar segir að fullyrðing Guðmundar standist ekki – „Jájá, það er ástæða fyrir því að ég var ekki í hóp“
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

5 strangar reglur sem stjörnurnar þurfa að fylgja á Met Gala

5 strangar reglur sem stjörnurnar þurfa að fylgja á Met Gala
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Silva aftur heim

Silva aftur heim
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Enok ákærður fyrir grófar líkamsárásir

Enok ákærður fyrir grófar líkamsárásir
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Einar slekkur í grillinu og Húsasmiðjan tekur við vörumerkjunum

Einar slekkur í grillinu og Húsasmiðjan tekur við vörumerkjunum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Chelsea vonast til að geta keypt Osimhen í sumar

Chelsea vonast til að geta keypt Osimhen í sumar

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.