Tískubloggara tekið fagnandi fyrir „raunverulega“ bikinímynd: „Bara meiriháttar feit pæja“
Tískubloggarinn Meagan Kerr, 35 ára, hefur ákveðið að taka afstöðu gegn „nýtt ár, ný þú“ með því að deila „raunverulegum“ bikinímyndum á Instagram.
„Bara meiriháttar feit pæja að lifa lífi sínu, hlæjandi og að hafa gaman á ströndinni,“ skrifar hún með myndinni.
https://www.instagram.com/p/B64m7dcFw1P/
„Finnst einhverjum öðrum þær fá endalaust af árásargjörnum auglýsingum fyrir megrunarkúra og „velferðar prógrömm“ og „nýtt ár nýtt þú“ ræktarkortum og detox/hreinsunarkúrum sem lætur þig kúka, og allt annað rusl tengt megrunarmenningu? Það er alltaf mikið um svoleiðis á þessum tíma árs þannig hér er eitthvað til að hrista upp í Instagram hjá þér,“ segir Meg.
„Í dag fór ég á ströndina í örugglega mest afhjúpandi bikiní sem ég hef klæðst í langan tíma og ég skemmti mér konunglega.“
https://www.instagram.com/p/B6KLhSJlUtB/
Fylgjendur Meg taka myndunum fagnandi og kalla þær „raunverulegar.“
„Ég kemst ekki yfir hversu fokking heit og glæsileg þú ert,“ skrifaði einn netverji.
„Virkilega glæsileg elskan mín,“ skrifaði annar.
„Já meira af þessu 2020,“ segir sá þriðji.