fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Ragnheiður heimsótti nektarþorp í Frakklandi: Nakið fólk á göngum matvöruverslana

Ragnheiður Eiríksdóttir
Laugardaginn 6. október 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í septembertölublaði Man magasín er grein eftir ykkar einlæga um heimsókn í nektarþorpið Cap d’Agde síðasta sumar. Án þess að endurtaka skrif mín þar má í stuttu máli segja að þorpið sé helgað núdistum á daginn og swingurum á kvöldin. Núdistar eru þeir sem njóta nektar í daglegu lífi, swingarar eru þeir sem njóta þess að stunda kynlíf eða kynferðisleg samskipti með fleirum en gengur og gerist á vísitöluheimilinu. Stundum skarast þessir hópar.

Þannig er daglegt brauð að sjá nakið fólk svífa um ganga matvöruverslana og lesa utan á túnfiskdósir, eða þiggja klippingu á hárgreiðslustofu kviknakið. Nekt er samþykkt og sjálfsögð, en fólki er líka frjálst að klæða sig að vild. Heilu fjölskyldurnar njóta sólar og sjávar á tveggja kílómetra strandlengjunni sem tilheyrir svæðinu.

Ragnheiður Haralds og Eiríksdóttir.
Swing er feimnismál í samfélaginu.

Á kvöldin, þegar börnin hafa verið svæfð, kveður hins vegar við annan tón, en þá ríkja losti og lystisemdir holdsins í bland við dúndrandi tónlist og litríka drykki. Eftir að sólin sest aukast líkur umtalsvert á að sjá fólk í klæðum – og ekki vegna lægra hitastigs, heldur kyntjáningar, ef svo má að orði komast. Leður, latex, blúndur og spandex í bland við meiri nekt en gengur og gerist í almennu næturlífi er málið. Atlot á almannafæri eru algeng, og í sérstökum klúbbum innan svæðisins má stunda allt það kynlíf sem hugurinn girnist – vitaskuld að því gefnu að aðilar séu samþykkir.

Þorpið er afgirt og alls ekki einfalt mál að fá inngöngu. Til þess þarf að greiða sérstakt gjald (hóflegt), sýna vegabréf, og bókunarstaðfestingu fyrir gistingu ef dvelja á lengur en dagstund. Slæm hegðun innan veggjanna veldur umsvifalausri brottvísun og svartlistun.

Síðan greinin kom út, og í raun frá því að ég byrjaði að fjalla um swing og óhefðbundnar leiðir í samböndum og kynlífi fyrir nokkru, hafa ótal spurningar rekið á fjörur mínar, sérstaklega frá fólki sem er spennt fyrir swingi en óttast að passa ekki inn í hópinn. Forvitni leikur á því hvers konar fólk leggur leið sína í kynlífsklúbba, swingarapartí eða þriggja vikna dvöl í kynlífs- og nektarþorpi í Suður-Frakklandi. Sumir hræðast að mæta í klúbb eða partí, aðeins til að komast að því að gestir séu allir „ljótir“ eða „ósexí“. Eins og þeir verði knúir til að sleikja sér leið út af staðnum. Hér er vert að minnast á að enginn er þvingaður til nektar eða kynlífs – það má alveg mæta og horfa á, og fólk þarf ekki að taka þátt í neinu svo lengi sem siðareglur eru ekki brotnar.

Í samfélagi okkar er swing ennþá talsvert feimnismál, nokkuð sem fæstir vilja bera á torg. Ég hef ekki ennþá birt viðtal við swingara undir nafni og mynd. Það hef ég hins vegar gert við fólk sem er virkt innan BDSM-senunnar og hefur opnað sig um ýmis blæti og kynlíf sem telst til hins óvenjulega. Líklega eru hlutirnir að breytast og kannski fylgja swingararnir í fótspor kinkí-fólksins fyrr en varir. Hvað kemur það líka öðrum við hvernig kynlífi við kjósum að lifa, og með hverjum? Ef allir eru samþykkir og njóta þess sem stundað er ættum við að samgleðjast í stað þess að láta smjatt og kjaftagang ná yfirhöndinni.

Ég settist því niður og hugsaði um gesti klúbbanna sem ég hef sótt, já, og fólkið í Cap d’Agde, og íslensku swingarana sem ég hef kynnst. Auk þess leitaði ég til nokkurra úr íslenska hópnum um það hvernig þau mundu lýsa swingurum. Það leiddi til eftirfarandi pælinga:

 

„Mér finnst alls ekki auðvelt að lýsa hópnum, nema að tala um fjölbreytnina. Alls konar fólk stundar swing og oft á það ekkert annað sameiginlegt.“

Karl, 40 ára

 

„Yfirleitt swinga þeir sem þú átt síst von á að geri það.“

Karl, 42 ára

 

„Ég get ekki lýst týpunni sem stundar swing, mér finnst hópurinn bara flottur þverskurður af samfélaginu, svona eins og í klúbbi sem spilar bridge eða félagsvist. Kannski væri hægt að tala um týpu sem fer í skátana eða björgunarsveit – það fólk á þó eitthvað sameiginlegt. Í swingi er fjölbreytnin mikil en kannski lítið um jaðartýpur. Þú finnur ekki marga bláhærða atvinnulausa.“

Kona, 41 árs

 

„Það er engin ein tegund af fólki, nema kannski að flestir eru á miðjum aldri, eða að nálgast hann. Spurning um að hvetja unga fólkið til dáða. Þau eru að missa af svo miklu!“

Karl, 40 ára

 

„Fólk á það sameiginlegt að vera jákvætt og opið fyrir sér og öðrum. Almennt opnara fyrir nýjum og nánari kynnum en gengur og gerist. Yfirleitt er um pör að ræða, en stundum koma einstaklingar. Það er auðveldara fyrir konur en karla. Reynslan sýnir að þeir eiga mun erfiðara með að fylgja reglum og skilja ekki alltaf þetta smáatriði með samþykki.“

Kona, 45 ára

 

„Við höfum hitt alls konar fólk í swingi. Sumir eru meðal okkar bestu vina í dag, en öðrum höfum við ekki átt samleið með. Bara eins og á öðrum sviðum lífsins.“

Kona, 44 ára

 

„Swingarar eru einstaklega skemmtilegt og opið fólk. Yfirleitt á miðjum aldri , vel menntað og á góðum stað í lífinu bæði með sjálfan sig og hjónabandið. Þú getur aldrei pikkað út úr mannfjöldanum hver er swingari og hver ekki því það er ólíklegasta fólk í þessu. Lífið eftir swingið er svo mikið skemmtilegra þar sem við erum búinn að eignast svo mikið af dásamlega skemmtilegum vinum.”

Kona, 45 ára

 

„Mín reynsla er að hinir dæmigerðu swingarar séu par milli fertugs og fimmtugs, búin að vera í sambandi í 10 ár eða meira og börnin komin á legg. Þau eru í góðum störfum, hann er iðnaðarmaður og hún sérfræðingur í heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Þau teljast líklega til millistéttar, eða efri millistéttar og eiga afgang eftir reikningana um hver mánaðamót. Þau ferðast talsvert og nota iðulega tækifæri til að heimsækja kynlífsklúbba í borgarferðum. Nokkrir í vinahópnum vita af swinginu, en alls ekki allir, og þá mundi aldrei gruna neitt!“

Ragga, 47 ára

 

Ragnheiður Haralds- og Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráðgjafi

Tímapantanir og spurningar: raggaeiriks@gmail.com

www.raggaeiriks.com

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Var „í sjokki“ eftir að hann kom til landsins í desember – „Fyrsta skrefið í því að hugsa um Ísland sem möguleika“

Var „í sjokki“ eftir að hann kom til landsins í desember – „Fyrsta skrefið í því að hugsa um Ísland sem möguleika“
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Spáin fyrir Bestu deild kvenna – „Ég myndi segja að það sé eina sjokkið“

Spáin fyrir Bestu deild kvenna – „Ég myndi segja að það sé eina sjokkið“
Eyjan
Fyrir 18 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Stöð 2 lækkar verð

Stöð 2 lækkar verð

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.