fbpx
Föstudagur 03.maí 2024

Heimasíða Reykjavík Fashion Festival etur kappi við heimasíðu breska Vogue

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 21. september 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimasíða Reykjavík Fashion Festival (RFF) keppir til úrslita sem besta evrópska heimasíðan á móti heimasíðu breska Vogue. Kosningin er opin til 5. október næstkomandi.

„Þegar ég tók við RFF haustið 2016 þá fórum  í „rebranding“ í samstarfi við hönnunarfyrirtækið Serious Business. Við fórum í stefnumótun og ákváðum að taka græna stefnu í takt við tímann,“ segir Kolfinna Von Arnardóttir framkvæmdastjóri RFF.

Serious Business er staðsett í Munchen í Þýskalandi. „Þetta er skemmtilegt og hugmyndaríkt teymi, fimm einstaklingar frá mismunandi löndum sem vinna saman. Þau vildu nota vefsíðuna sem sitt besta verkfæri til að ná náttúruímyndinni og miðla henni áfram. Við vildum hafa heimasíðuna fallega og hún fór í loftið í febrúar síðastliðnum, bara um sex vikum áður en hátíðin var haldin.“

Re-branding Reykjavik Fashion Festival

New article in our blog sharing our process during the re-branding of Reykjavik Fashion Festival that we finished back in March this year. https://blog.seriousbusiness.agency/re-branding-reykjavik-fashion-festival-96e85509a74a

Posted by Serious Business on 19. júní 2017

„Við skírðum hátíðina ROK, sem er náttúruafl sem íslenskir hönnuðir alast upp við og fá innblástur frá og á vefsíðunni erum við með ýmsa vísun í veðráttuna,“ segir Kolfinna Von.

Reykjavík Fashion Festival (RFF) 2017 var síðan haldin samhliða HönnunarMars dagana 23. – 25. mars í Silfurbergi, Hörpu.

Vefsíðan vekur athygli erlendis

„Þegar hátíðinni lauk fórum við að fá athygli og umfjöllun um heimasíðuna. Sem dæmi má nefna frá Readymag sem heimasíðan er sett upp í, þeir fjalla sérstaklega um okkur. Svo um það bil einu sinni í mánuði vorum við að fá tilkynningu um að vefsíðan væri í kosningu á netinu. Fyrsta var í alþjóðlegri keppni sem heitir Mindsparkle Mag.“

Þar er kosin daglega Mest skapandi heimasíðan (Most Creative Website) og eftir hvert ár er gefin út bók þar sem er fjallað um þær 365 vefsíður sem valdar voru og RFF því þegar búin að tryggja sér sæti þar.

„Það er búið að fjalla um heimasíðuna í erlendum fjölmiðlum og það er greinilega að vefsíðan vekur athygli erlendis,“ segir Kolfinna Von hæstánægð með viðtökurnar. „Ég fæ oft pósta þar sem mér er tilkynnt að fjallað hafa verið um vefsíðuna í erlendu tímariti og það eru jafnvel tímarit sem ég hef ekki heyrt minnnst á áður.

Kosning er opin til 5. október næstkomandi og geta allir kosið hér.

Undirbúningur að RFF 2018 er þegar hafinn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Framboð Viktors gilt
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Var engan veginn skemmt yfir athæfi Carragher og lætur hann heyra það

Var engan veginn skemmt yfir athæfi Carragher og lætur hann heyra það
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Ferðamann langar mikið til að eignast íslenskan vin

Ferðamann langar mikið til að eignast íslenskan vin
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Aron: „Ég held að það sé nú þannig hjá 90 prósent af liðunum í þessari deild“

Aron: „Ég held að það sé nú þannig hjá 90 prósent af liðunum í þessari deild“
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Sumir eigendur iPhone hafa fengið að sofa út síðustu daga, alveg óvart

Sumir eigendur iPhone hafa fengið að sofa út síðustu daga, alveg óvart
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum
Framboð Viktors gilt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Mourinho telur að þessi þrjú lið geti unnið EM í sumar

Mourinho telur að þessi þrjú lið geti unnið EM í sumar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Starfsmenn United pirraðir – Skorið niður hjá þeim en eiginkonur leikmanna fá mat og gjafir

Starfsmenn United pirraðir – Skorið niður hjá þeim en eiginkonur leikmanna fá mat og gjafir
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

„Málið er að sársauki hefur verið markaðsvæddur og lyfin eru kynnt sem lausnin“

„Málið er að sársauki hefur verið markaðsvæddur og lyfin eru kynnt sem lausnin“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum
Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – fólkið velur forsetann, ekki fjölmiðlar eða skoðanakannanir

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.