Ótrúlegt en satt þá eru komin fimm ár síðan framleiðslu Jersey Shore raunveruleikaþáttanna lauk. Þættirnir voru sýndir á MTV á árunum 2009-2012. Jersey Shore fjalla um ítalskt ættað ungt fólk sem býr í Bandaríkjunum en á íslensku myndi líklegast fólkið vera kallað „skinkur“ og „hnakkar.“
Í þáttunum fór mestur tími í að rífast, djamma, borða, fara í ræktina og í ljós. Þættirnir náðu gífurlegum vinsældum í Bandaríkjunum og í öðrum löndum eins og á Íslandi. Þættirnir voru hins vegar einnig afar umdeildir á sínum tíma vegna mikillar áfengisneyslu og nektar.
Nicole „Snooki“ Polizzi, Mike „The Situation“ Sorrentino, Sammi „Sweetheart“ Giancola, Jenni „Jwoww“ Faley og Paul „Pauly D“ DelVecchio hafa komið saman fyrir svokallaðan „reunion“ þátt E!News sem heitir Road Trip Reunion: Return To the Jersey Shore. Þátturinn verður sýndur þann 20. ágúst næstkomandi.
Stjörnurnar hafa að sjálfsögðu breyst síðastliðin ár og hér eru myndir af þeim þegar þættirnir voru í loftinu og núna.
Margt hefur gerst síðustu ár. Snooki og Jwoww eru giftar með börn og Pauly D er einnig pabbi. Flest þeirra hafa haldið áfram að koma fram í raunveruleikaþáttum, eins og Ronnie og Pauly D voru báðir í Famously Single og Snooki og JWoww voru með sinn eigin raunveruleikaþátt í nokkur ár.