

geoSilica er sprotafyrirtæki sem vinnur kísil fæðubótarefni úr háhitavökva frá Hellisheiðarvirkjun. Fyrirtækið hefur markaðssett vöru sína á Íslandi og erlendis undanfarin misseri en ýmis jákvæð áhrif kísilsteinefnis hafa verið rannsökuð s.s. í tengslum við mótun beina og kollagens í líkamanum auk þess sem steinefnið virðist hafa hlutverki að gegna varðandi varnir líkamans gegn vírusum í meltingavegi, svo eitthvað sé nefnt.
Frá því að geoSilica hóf framleiðslu og sölu á geoSilica fæðubótarefninu hefur fyrirtækinu borist reynslusögur frá notendum sem merkja jákvæðar breytingar á heilsu. Má þar helst nefna bættan járnbúskap líkamans og minni lið- og bakverki auk þess sem inntaka virðist hafa jákvæð áhrif á brjóstsviða og bakflæði ef marka má umsagnir notenda. Meðalinntaka kísils hjá fólki í hinum vestræna heimi er á bilinu 20-50mg á dag en inntaka er örlítið lægri hjá konum en körlum. Það dregur úr kísilinntöku fólks með aldrinum, eða um 0.1% minnkun á ári eftir um 26-39 ára aldur (3).
geoSilica fæðubótarefnið inniheldur kísil steinefni, en varan er einnig laus við öll aukaefni. Skammtur af geoSilica er um 10ml á dag í fljótandi formi en samkvæmt bandarísku lyfja- og matvælastofnuninni og Alþjóða heilbrigðisstofnuninni er efnið hættulaust mönnum (13).
Flest fáum við öll þau vítamín og steinefni sem líkaminn þarfnast úr fæðu en þó eru á því undantekningar. Skortur á steinefnum eins og kísil getur haft alvarlegar afleiðingar á stoðkerfi, bandvef og þroska (1,2,3). Rannsóknir sýna samband á milli kísilinntöku og þéttleika beina en beinþynning er mikið áhyggjuefni meðal vestrænna þjóða. Beinþynning er kostnaðarsöm fyrir heilbrigðiskerfið og mjög hamlandi fyrir þá sjúklinga sem þjást af henni, þar sem stökk bein brotna frekar (2,5).
Samkvæmt nýlegri samantektarrannsókn sem birtist í fagtímaritinu Nutrition of Healthy Aging, virðist kísil inntaka hafa marktæk jákvæð áhrif á vöxt og endurnýjun beinvefs en 38 rannsóknir voru skoðaðar í þessu tilliti (10). Niðurstöðurnar eru í takt við fjölmargar reynslusögur af notkun geoSilica en einnig benda reynslusögur til þess að kísill hafi jákvæð áhrif á járnbúskap líkamans þar sem neytendur sem áður tóku járn vegna járnskorts hafa jafnvel minnkað járninntöku, eða hætt henni, eftir að þeir fóru að nota geoSilica að staðaldri.
Áhrif kísils á önnur steinefni m.a. á járnbúskap eru því miður af skornum skammti. Járnskortur er algengasti næringarskortur sem hrjáir mannkynið (6,7) en allt að því helmingur óléttra kvenna í vanþróuðum löndum glímir við járnskort (anamia) og um 40% barna. Alþjóða heilbrigðisstofnunin hefur hrint í framkvæmd stríði gegn járnskorti með það að markmiði að draga verulega úr þeirri byrði sem járnskortur orsakar í heiminum. Heilsufarslegur kostnaður af járnskorti er mjög mikill en leiða má líkur að því að um 20% allra dauðsfalla, meðal mæðra í þróunarlöndum, megi rekja til járnskorts (6). Það gæti því verið mikilvægt í þessu ljósi að rannsaka áhrif kísils á járnbúskap sérstaklega.
Nýleg rannsókn bendir til þess að mögulega gegni kísilsteinefni hlutverki í varnarkerfi líkamans. Rannsóknin sem framkvæmd var af vísindamönnum við bandarísku lyfja- og matvælastofnunina (Food and Drug Administration, FDA), sýndi fram á mikilvægi kísils við að halda aftur af útbreiðslu vírusa í meltingavegi, nánar tiltekið Norovírusnum. Norovírusinn er mjög hvimleiður og algengur meðal fólks, en á bilinu 570-800 dauðsföll í Bandaríkjunum (11) má rekja til hans árlega. Norovírusinn leggst á um 2.5 manns af hverjum 10.000 (12) að meðaltali á heimsvísu, en vírusinn er ein algengasta ástæða maga- og garnabólgu í mönnum. geoSilica stefnir að því að hefja markvissar rannsóknir á áhrifum kísilsteinefnis á heilsu á næstu misserum. Þrátt fyrir fjölbreyttar erlendar rannsóknir á áhrifum kísils er nauðsynlegt kanna enn frekar möguleg áhrif af inntöku kísils á heilsuna. Eitt af mörgum skrefum í þeirri vegferð verður að framkvæma klíníska forrannsókn (phase 1 trial) þar sem markmiðið er að kanna áhrif mismunandi skammtastærða á heilsu og því hefur fyrirtækið lagt drög að slíkri rannsókn.
Jóhann Friðrik Friðriksson, lýðheilsufræðingur
Hér má nálgast allar heimildir sem vitnað er í

„Ég finn mikinn mun á mér eftir að ég byrjaði að taka kísilinn frá geoSilica inn reglulega. Ég ákvað að prófa að taka út kísilinn í tvær vikur til að finna mun og hann finn ég. Beinverkir og vefjagigtarverkir sem ég var í raun alveg hætt að finna eru komnir aftur en í minna mæli og eina sem er breytt er að kísillinn er dottinn út. Einnig fann ég mikinn mun á nöglum en þær eru mun sterkari en þær voru alltaf að brotna hjá mér. Ég get alveg sagt að þið eruð komin með framtíðarkúnna hvað mig varðar.“
„Ég búin að vera að nota geoSilica í góðan tíma núna, ég byrjaði á honum í töfluformi frá öðrum framleiðendum eftir fyrsta barn og eru rúm 5 ár síðan, en mér fannst líkaminn ekki vera að vinna nóg úr þeim eða þær ekki virka nóg fyrir mig, og færði mig yfir í geoSilica fyrir rúmu ári. Þetta hefur reynst mér mjög vel eftir barnsburð nr. 2, þá sérstaklega vegna hárloss, það er allt annað að sjá á mér kollinn núna og ég vildi óska að ég ætti fyrir og eftir myndir af mér því að þetta hefur sko sannarlega hjálpað til.“
„Ég hef tekið kísilinn í um það bil eitt ár. Ég fann fljótt að hann hafði góð áhrif á mig. Ég er betur vakandi og hef betra úthald. Hef verið með vefjagigt og veit hvernig orkuleysið fer með mann. Svo er það annar litli puttinn minn, sem ég klemmdi þegar ég var barn. Hann er bæklaður eftir það, og ég var með mjög mikla verki í honum. Svo tók ég allt í einu eftir því að verkirnir voru horfnir. Ég sleppti svo að taka inn kísilinn í einhvern tíma, og þá fór ég að finna fyrir verkjum aftur. Ég finn líka mun á hvað mér líður allri betur, er hressari. Það er eitthvað sem ekki er gott að útskýra. Takk fyrir mig.“
„Mér var ráðlagt að prófa geoSilica vegna hármissis. Fékk nokkra skallabletti, líklega vegna áfalls og að vera 23 ára með skalla er nokkuð sem enginn óskar sér! Fyrst leit þetta ekkert svakalega vel út þar sem hárið virtist ekki ætla að koma til baka. Ég byrjaði að taka þetta inn á hverjum degi og viti menn, hárið byrjaði að vaxa á ógnarhraða! Ég er svo ánægð að þetta gerðist svona fljótt því læknarnir sögðu að kannski kæmi það ekki aftur. En geoSilica fékk hárið til þess að vaxa! Hér eru fyrir og eftir myndir.“
