
Slúðurpressan logar þvísést hefur til Kourtney Kardashian og Younes Bendijma saman upp á síðkastið og í kjölfarið spyrja sig allir: Hvað er í gangi?! Samkvæmt E! News þá hafa þau verið að hittast í smá tíma en sambandið er ekki orðið alvarlegt.

„Kourtney og Younes hittust nokkrum sinnum í síðustu viku. Þetta hefur verið óformlegt, en þau eru að kynnast hvort öðru mjög vel og skemmta sér,“
sagði heimildarmaður náinn Younes. Kourtney og Younes kynntust í október á tískuvikunni í París. Hann var með henni kvöldið sem Kim Kardashian var rænd á hótelherbergi sínu í París. „Hann var mjög hjálpsamur og stuðningsríkur á þeim tíma,“ sagði heimildarmaðurinn og tók það fram að þau hafa verið að hittast síðan þá.

„Kourtney er mjög hrifin af honum og sendir honum smáskilaboð við hvert tækifæri til að hittast þegar hún er án barnanna sinna. Þau borðuðu hádegismat saman á miðvikudaginn og stoppuðu snöggt við á listasafni.“
Annar heimildarmaður bætir við að þau hafi verið að leiðast og litu út fyrir að hafa það kósý. Það eru ekki allir ánægðir með fréttirnar og þá sérstaklega Scott Disick. Scott er fyrrverandi kærasti og barnsfaðir Kourtney sem flestir kannast við úr Keeping Up With the Kardashians.

„Scott líkar alls ekki að Kourtney sé að hitta Younes. Hann vill ekki sjá myndir af þeim saman eða vita af þeim. Kourtney hefur reynt að var Scott við því að hann gæti séð einhverjar myndir, en Scott þolir ekki að sjá hana með einhverjum öðrum, sérstaklega Younes,“
sagði heimildarmaður E! News. Scott er ekki að hitta neina sérstaka konu þessa stundina, en er þó að „deita“ samkvæmt heimildarmanni E! News. „Hvort sem þau eru saman eða ekki verður Scott mjög afbrýðisamur þegar hann sér eða heyrir að Kourtney er með einhverjum.“
Kourtney og Scott voru saman í níu ár þangað til þau ákváðu að slíta sambandinu í júlí 2015. Hins vegar hafa þau verið náin síðan og hjálpast að við uppeldið á þremur börnunum þeirra Mason, Penelope og Reign.