fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

261 dagur: Playlisti Kristborgar Bóelar

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 4. maí 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag kemur út bókin 261 dagur eftir Kristorgu Bóel Steindórsdóttur. Bókin er byggð á dagbókarskrifum sem aldrei áttu að verða annað en líflína út úr óbærilega sársaukafullu hugarástandi sem höfundur upplifði í kjölfar sambandsslita við seinni barnsföður sinn árið 2015.

Bókin er einnig nýstárleg að því leyti að henni fylgir lagalisti á Spotify sem ber einfaldlega nafnið 261 dagur – Kristborg Bóel. Lagalistinn er beintengdur ritverkinu og inniheldur 68 lög sem öll koma fyrir í réttri röð í bókinni.

Á blogsíðu sinni segir Kristborg Bóel um lagalistann:

„Tónlist er svo magnað fyrirbæri. Kastar manni áratugi aftur í tímann ef því er að skipta, beint í ákveðnar, áður-upplifaðar aðstæður, góðar sem slæmar.

Ég fæ enn smá hroll þegar ég heyri lög af Metal Ballads-disk sem ég tók með mér í Alþýðuskólann á Eiðum í tíunda bekk. Hann beintengi ég við ástarsorg, drama og erfiðar tilfinningar. Ég tárast við að heyra lög sem ég á einhvern hátt tengi börnunum mínum. Fæ fiðring í magann þegar ég heyri lög sem spilað hafa verið undir einhverjum fíflagangi sem ég hef framkvæmt með vinkonum mínum. Eins og flestir tengi ég líka ákveðin lög við báða mína sambúðarmenn.

Ég hlusta mikið á tónlist, allskonar tónlist. Það gerði ég líka á þeim tíma sem bókin greinir frá og því fylgir henni lagalisti á Spotfy. Listinn dregur eðli málsins samkvæmt dám af innihaldi bókarinnar og er þunglyndislegur á köflum – enda, hvað ætli hafi verið samin mörg lög um ástarsorg? Eyjólfur hressist svo annað slagið og þá sérstaklega á líður.“

Það er Björt sem gefur bókina út og fylgjast má með Kristborgu Bóel á blogsíðu hennar og Instagram.

Lestu einnig: Playlisti Dadda Disco.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Samtal Liverpool við Slot virkt

Samtal Liverpool við Slot virkt
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ten Hag sagður á útleið – Þetta var síðasti naglinn í kistu hans

Ten Hag sagður á útleið – Þetta var síðasti naglinn í kistu hans