fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Fyrsta bæjarhátíð ársins hefst á miðvikudag: Bjartir dagar í Hafnarfirði

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 17. apríl 2018 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menningar og þátttökuhátíðin Bjartir dagar verður haldin í dagana 18.-22. apríl næstkomandi í tengslum við Sumardaginn fyrsta.

Bjartir dagar er þátttökuhátíð og byggir á því að stofnanir, félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar taki þátt í að skapa viðburði um allan bæ sem tengjast hátíðinni eða taki þátt í þeim dagskrárliðum sem aðrir skipuleggja. Sérstök áhersla er lögð á þátttöku barna og unglinga enda er Sumardagurinn fyrsti hluti af hátíðarhöldunum. Ýmsir tónlistarviðburðir skipa stóran sess í dagskrá Bjartra daga í ár og á föstudagskvöld verða söfn, verslanir og vinnustofur listamanna opnar fram á kvöld. Þá standa tónlistarmenn, íþróttafélög og ýmis félagasamtök að fjölbreyttum viðburðum og menningarstofnanir bæjarins bjóða upp á skemmtilega dagskrá.
Hátíðin hefst á því að þriðjubekkingar syngja inn sumarið á Thorsplani síðasta vetrardag, bæjarlistamaður Hafnarfjarðar verður útnefndur ásamt því að Menningar- og ferðamálanefnd veitir styrki til viðburða og menningarstarfsemi.

Tónlistarhátíð HEIMA haldin í fimmta sinn

Tónlistarhátíðin HEIMA fer nú fram í fimmta sinn og hefur sannarlega fest sig í sessi sem skemmtileg og öðruvísi tónlistarhátíð sem býður upp á öðruvísi upplifun og meiri nánd en tónleikagestir sem og listamenn eiga að venjast. Fjölskyldur munu sem fyrr opna heimili sín í miðbæ Hafnarfjarðar og í hverju húsi spila tveir mismunandi listamenn eða hljómsveitir. Fjölmörg önnur tónlistaratriði eru á dagskrá en lög hinna vinsælu söngvara Hauks Morthens, Alfreðs Clausen og Sigurðar Ólafsson verða rifjuð upp á tónleikum í Hraunseli, félagsmiðstöð eldri borgara síðasta vetrardag og Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar býður á tónleika þar sem léttklassísk tónlist verður flutt af ungu tónlistarfólki. Þá má heyra litríka tóna millistríðsáranna fyrir klarinett, fiðlu og gítar í Fríkirkjunni á Sumardaginn fyrsta, Lúðrasveit Hafnarfjarðar heldur vortónleika í Víðistaðakirkju á laugardag og börnum á aldrinum 3-6 ára býðst að koma í einstaka tónlistarstund og kynnast barnahörpunni í Hljómu á Austurgötu á sunnudag.

Dagskrá sumardagsins fyrsta

Sumardagurinn fyrsti hefst á víðavangshlaupi á Víðistaðatúni þaðan sem skrúðgangan heldur á Thorsplan í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem skátafélagið Hraunbúar sér um fjölbreytta fjölskyldudagskrá sem Gunni og Felix stjórna af sinni alkunnu snilld og fjölmargir hafnfirðingar koma fram, svo sem Björgvin Franz og Bíbí, Brynjar Dagur og leikfélag Flensborgarskólans sýnir brot úr Pitz Perfect.

Gakktu í bæinn

Kraftur og gróska í listalífinu í Hafnarfirði hefur meðal annars endurspeglast í viðburðinum Gakktu í bæinn þegar listamenn, hönnuðir og handverksfólk á svæðinu frá smábátahöfninni að miðbæ Hafnarfjarðar opna vinnustofur sínar og bjóða gesti og gangandi velkomna í heimsókn. Þá verða verslanir í miðbænum opnar fram á kvöld og tilvalið að versla einstaka hönnun í hjarta Hafnarfjarðar.

Á Björtum dögum stendur íþróttahreyfingin í Hafnarfirði fyrir kynningum á íþróttagreinum í íþrótta- og heilsubænum Hafnarfirði til að vekja athygli á því frábæra starfi sem fer fram í félögunum og sýna bæjarbúum og öðru áhugafólki um íþróttir brot af því besta sem fer fram í íþróttagreinum bæjarins. Til dæmis  verður opið hús hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar á sumardaginn fyrsta og hægt að fá afnot af búnaði ef þarf, Siglingaklúbburinn Þytur býður bæjarbúum að sigla á Sumardaginn fyrsta, Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar haldur diplomamót á laugardag og Golfklúbburinn Keilir býður upp á ókeypis golfkennslu og á sunnudag gefst tækifæri til að fylgjast með efnilegustu badmintonspilurum landsins leika til úrslita á bikarmóti Badmintonfélags Hafnarfjarðar og borðtennis og tennisdeild félagsins kynna starfsemi sína.

Í aðdraganda Bjartra daga, þriðjudaginn 17. apríl, verður haldið málþing í Hraunvallaskóla þar sem fulltrúar frá skrifstofu fræðslu- og frístundaþjónustu og fjölskylduþjónustu ásamt starfsfólki frá leik- og grunnskólum bæjarins munu kynna þau verkefni sem hafa markað starfið undanfarin ár fyrir bæjarbúum.

Allar upplýsingar um Bjarta daga má finna hér.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Tók myndir upp undir kjóla og pils 107 kvenna

Tók myndir upp undir kjóla og pils 107 kvenna
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“

Baunaði hressilega á fyrrum samstarfsmenn í sjónvarpinu: Var aldrei svona heppinn – ,,Gátu ekki dreift vatnsflöskum sín á milli“
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Er kallinn sjaldan í kynlífsstuði? Þetta gætu verið ástæðurnar fyrir því

Er kallinn sjaldan í kynlífsstuði? Þetta gætu verið ástæðurnar fyrir því
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða