Fókus

Lúxuslíf Íslendinga: Sigmundur og Anna - Búa hjá mömmu og pabba

Mynd
Glæsilegur feldur Sigmundur Davíð og Anna Sigurlaug.

Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, og eiginkonu hans, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur, þarf vart að kynna enda hefur hann verið einn fyrirferðarmesti pólitíkus landsins um margra ára skeið.

 

Sigmundur og Anna eru bæði af vellauðugum ættum. Gunnlaugur Sigmundsson, faðir Sigmundar, hagnaðist mikið á félaginu Kögun sem var upprunalega ætlað sem almenningshlutafélag. Anna Sigurlaug er úr Toyota-fjölskyldunni svokölluðu.

Anna fékk fyrirframgreiddan arf og seldi Magnúsi Kristinssyni útgerðarmanni hlut sinn fyrir 5,3 milljarða. Hefur þessi arfur verið geymdur í hinu þekkta félagi Wintris á Bresku jómfrúaeyjum, en það mál skók Ísland vorið 2016. Eina félagið samkvæmt fyrirtækjaskrá sem skráð er á Önnu er tíu prósenta hlutur í sprotafyrirtækinu Divine Love.

Sigmundur og Anna Sigurlaug búa í glæsilegu einbýlishúsi í Garðabænum með sex ára dóttur sinni. Húsið er hins vegar í eigu foreldra Önnu, Páls Breiðdal Samúelssonar og Elínar Sigrúnar Jóhannesdóttur.

 

Heimili:

Skrúðás 7

370,2 fm

Fasteignamat: 135.000.000 kr

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson:

Tekjublað DV 2018: 1.245.000 kr

Ekki missa af nýjasta DV.