„Ógeðið er alls staðar. Eineltið og pervertarnir finna sína leið,“ segir Margrét Erla Maack fjölmiðlakona en í pistli greinir hún frá atviki sem vakti hana til umhugsunar um útbreiðslu Snapchat forritsins meðal íslenskra unglinga. Sjálf á Margrét stóran fylgjendahóp á samfélagsmiðlinum og var það ekki þar til nýlega að hún áttaði sig á þar á meðal eru eiinnig ungmenni á viðkvæmum aldri.
Í pistli sem birtist á vef Kjarnans bendir Margrét á að samfélagsmiðlar í dag séu mikil gróðastía fyrir einelti og þá greinir hún frá nýlegu atviki sem sýnir glögglega hversu vinsælt Snapchatt forritið er á meðal íslenskra ungmenna. Segir Margrét að oftar en ekki hafi myndefni hennar á miðlinum fyrst og fremst verið ætlað fullorðnum.
Greinir Margrét Erla frá því að nýlega hefði hún birt mynd af ónefndum aðila á Snapchat rás sinni og greint frá því að sá hinn sami hefði eitt sinn gerst sekur um árás. Viðkomandi aðili braut bjórglas á höfði vinar Margrétar Erlu á sínum tíma. Uppátæki Margrétar átti þó eftir að draga ákveðinn dilk á eftir sér.
„Ég var ekki að koma með nýjar upplýsingar – þetta var blaðamál á sínum tíma, og allir nafngreindir með mynd, en það er alveg þónokkuð síðan. Daginn eftir hringir keppandinn í mig. Ég verð auðvitað gjörsamlega miður mín, og tek þetta út í snatri. Þá hafði táningsdóttir mannsins séð þetta á snaptjatt og allt fjölskyldulífið í molum.“
Margrét Erla kveðst þarna hafa byrjað að setja spurningamerki við innihald myndefnisins sem hún hafði verið að setja inn á Snapchat rás sína.
„Eftir símtalið gat ég þó ekki varist hugsuninni um að ég hefði átt að spyrja hann hversu lengi dóttir hans hefði fylgt mér á snapptjatt. Ég hefði nefnilega sett fleiri mannskemmandi hluti á snapptjattið mitt fyrir ungling að sjá, þó ekki væri það eineltisgrín fyrr en þarna,“ ritar Margrét en hún kveðst hafa tekið sig á í notkun sinni á miðlinum í kjölfar þessa atviks.
„Kæru foreldrar ekki leyfa börnunum ykkar að followa mig á snapptjatt. Ég vona að sá miðill sé bara búinn hjá táningum og einhver annar kominn í staðinn.“