fbpx
Föstudagur 01.maí 2026
Fókus

Bað stórleikarann eiginmann sinn um tvennt eftir brjóstakrabbameinsgreiningu

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 09:30

Tom Hanks og Rita Wilson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Rita Wilson sagði eiginmanni sínum, leikaranum Tom Hanks, eftir að hún greindist með brjóstakrabbamein árið 2015 að ef hún myndi deyja, vildi hún að hann yrði „leiður í mjög langan tíma.“

Leikkonan rifjaði upp hjartnæmt samtal parsins um heilsufarsbaráttu sína þegar hún ræddi við Demi Moore á viðburðinum Sound of a Woman: Rita Wilson in Conversation í New York á þriðjudag.

„Ég sagði við Tom: Ef eitthvað gerist og ég dey fyrst, þá hef ég bara tvær óskir. Og önnur er að þú ættir að vera leiður í mjög, mjög langan tíma,’“ sagði Wilson, 69 ára.

Wilson og Demi Moore

Önnur beiðni hennar fyrir Hanks, 69 ára, var að „halda veislu fyrir mig.“

„Ég vil að þetta verði hátíð lífsins,“ minntist Wilson að hafa sagt við Hanks. „Ég vil að þetta snúist um fólk sem segir sögur og gleði og minnist mín á þann hátt.“

Hjónin hafa verið gift síðan 1988. Wilson gekkst undir tvöfalt brjóstnám og endurgerðaraðgerð eftir að læknar greindu hana með krabbamein árið 2015.

Wilson sagði í viðtalinu að lagið Throw Me a Party  frá árinu 2019 væri innblásið af samtali hennar og Hanks eftir að hún greindist.

„Lagið, það kom út úr þessari sögu sem ég hef sagt áður, þegar þú færð greininguna og hugsar: Ég veit ekki, ég veit ekki hvað gerist, en ég vona að ég verði ennþá hér eftir nokkur ár,’“ sagði Wilson við áhorfendurna.

Í mars 2025 fagnaði Wilson því að áratugur væri liðinn frá því að hún var laus við krabbamein með hjartnæmri færslu á Instagram.

„10 ár. Og ég er svo innilega þakklát,“ sagði Wilson. „Þakklætið er yfirþyrmandi. Mér leið ekki alltaf svona. Og þú veist það, allir sem ganga í gegnum þetta og sem hafa lifað af vita að þetta er eins og hamstrahjól. En svo kemur maður að þessum punkti.“

Wilson sagðist ekki tala mikið um meinið en birta færslu um krabbameinslausa afmælið sitt vegna þess að „það er mikilvægt að fagna góðum fréttum.“

„Ég er að hugsa til allra þarna úti sem gætu verið að ganga í gegnum erfiðleika,“ bætti hún við. „Þið eruð í hugsunum mínum og bænum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnhildur útskýrir gaslýsingu á mannamáli

Ragnhildur útskýrir gaslýsingu á mannamáli
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Fór til Íslands og fékk áfall yfir verðinu – Sjáðu myndbandið

Fór til Íslands og fékk áfall yfir verðinu – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum
Fókus
Fyrir 1 viku

Komst að leyndarmáli kærustunnar með falinni myndavél

Komst að leyndarmáli kærustunnar með falinni myndavél