fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fókus

Húsnæði „kaupmannsins á horninu“ í Vesturbæ til sölu

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 21:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verslunarhúsnæði á jarðhæð Ásvallagata 19 er komið á sölu, en í húsnæðinu er verslunin Kjötborg, ein þekktasta hverfisverslun höfuðborgarinnar og þó víðar væri leitað. 

Bræðurnir Gunnar og Kristján Jónassynir eru eigendur Kjötborgar og hafa staðið vaktina frá árinu 1981 í verslun sinni á horni Ásvallagötu og Blómvallagötu.

„Kæra FB fjölskylda og vinir, komið er að tímamótum hjá Kjötborgar bræðrum. Og tími til kominn að snúa sér að öðru. Í tilefni þess biðjum við ykkur um að dreifa fasteignaauglýsingu um Ásvallagötu 19 svo þeir geti farið að njóta og lifa (eins og sagt er í laginu)“, skrifar Jónas Þór, sonur Gunnars í færslu á Facebook.

Húsið er byggt árið 1938 og er jarðhæðin 88 fm. Óskráður kjallari er undir hluta húsnæðisins sirka 40 fm og ekki með fullri lofthæð. Húsnæðið er að mestu einn salur með snyrtingu og starfsmannaaðstöðu baka til.

Ásett verð er 55 milljónir króna

Í auglýsingu kemur fram að húsnæðið gæti hentað fyrir margskonar starfsemi. Tilvalið til að breyta í íbúð eins og segir.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Fótboltaveisla í miðbæ Selfoss

Fótboltaveisla í miðbæ Selfoss
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer
Fókus
Fyrir 5 dögum

Viðurkennir að hafa verið „lítillega ölvaður“ þegar hann hraunaði yfir gagnrýnanda

Viðurkennir að hafa verið „lítillega ölvaður“ þegar hann hraunaði yfir gagnrýnanda
Fókus
Fyrir 5 dögum

Segja „skrýtið og viðbjóðslegt“ að taka upp kynlífssenur saman

Segja „skrýtið og viðbjóðslegt“ að taka upp kynlífssenur saman
Fókus
Fyrir 6 dögum

Katie Price í tómum vandræðum með að leysa eiginmanninn úr fangelsi: „Ég er ekki heimsk“

Katie Price í tómum vandræðum með að leysa eiginmanninn úr fangelsi: „Ég er ekki heimsk“
Fókus
Fyrir 6 dögum

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið