fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fókus

Vampíruleikarinn var í skuldasúpu – Svona náði hann sér réttu megin við núllið

Fókus
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 16:30

Ian Somerhalder. Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Ian Somerhalder, sem þekktastur er fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunm The Vampire Diaries og Lost skuldaði stórfé, sem hann átti erfitt með að sigrast á eftir að viðskiptasamningur fór út um þúfur.

Eftir að hafa leikið í tveimur af stærstu sjónvarpsþáttum 20. aldarinnar mætti búast við að leikarinn hafi verið velauðugur. Staðreyndin er hins vegar sú að Somerhalder, sem hætti í leiklistinni árið 2019, og eiginkona hans, Nikki Reed, skulduðu 8 stafa tölu eftir að viðskiptafyrirætlanir þeirra gengu ekki upp.

„Ég lét af störfum í leiklist fyrir sjö árum,“ sagði Somerhalder við E! News í gær. „Ég hætti ótrúlega arðbærum sjónvarpsferli eftir fjárhagslegt umrót við að byggja upp fyrirtæki sem byggðist ekki upp almennilega. Og vegna svika kom það mér og konunni minni í átta stafa holu.“

Og það var hola sem var sérstaklega „erfitt að komast upp úr“, viðurkenndi Somerhalder, en hann þakkaði eiginkonu sinni yrir að hafa átt stóran þátt í að þau komust aftur á rétta braut.

„Hún samdi okkur virkilega út úr þessum samningi en við seldum hús, málverk, bíla, úr, allt.“

Nikki Reid og Ian Somerhalder. Mynd: Getty.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Somerhalder hefur talað um hlutverk eiginkonu sinnar í að koma lífi hans aftur í lag: „Þessi kona ákvað að hún vildi ekki sjá eiginmann sinn eyðileggja líkama/hug/anda hans og lét hendur standa fram úr ermum og safnaði teymi saman til að komast að samningaborðinu til að finna leið út fyrir okkur. Hún helgaði líf sitt því að hjálpa mér út úr þessum vanda.“

Stór hluti fjárhagsvandræða parsins stafaði af hörmulegu viðskiptaævintýri sem leiddi til þess að parið varð fórnarlamb svika.

Áður en Somerhalder hóf samband við Reed byggði hann upp orkufyrirtæki og fjárfesti stóran hluta af tekjum sínum í fyrirtækinu á meðan hann var enn að leika í  The Vampire Diaries. Auk þess að leggja fram háar fjárhæðir gekkst hann einnig undir „risastórar persónulegar  ábyrgðir til banka“.

Segir hann að hlutirnir hefðu fljótlega farið úrskeiðis „vegna græðgi og svika innan þess fyrirtækis og svikalegrar starfsemi stærsta viðskiptavina okkar.“

Tímabundið hrun olíu- og gasiðnaðarins á þeim tíma olli einnig usla í framtíð fyrirtækisins og þýddi að lokum að Somerhalder gat ekki staðið undir skuldbindingum sínum til lánardrottna.

Somerhalder segir litið til baka  að hann „hefði átt að vera að hætta störfum hjá einum stærsta sjónvarpsþætti í heimi“ í stað þess að „stofna fyrirtæki sem myndi aldrei borga mér laun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“

„Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni

Lýsir „mjög skrýtnum“ hópkynlífskvöldum með Hugh Hefner í Playboy-höllinni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?
Fókus
Fyrir 1 viku

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða