Kynnti framlag Ísrael með beittri pólitískri ádeilu
Seinni undanrásarriðill Eurovision-keppninnar í Kiev fór fram í gær. Keppnin var að sjálfsögðu í beinni útsendingu á RÚV og var kynnir keppninnar til margra ára, Gísli Marteinn Baldursson, á sínum stað. Eins og hefð er orðin fyrir skaut sjónvarpsstjarnan föstum skotum að klæðaburði keppenda og öðru sem hann taldi einkennilegt í meira lagi. Rithöfundinum Stefáni Mána var nóg boðið:
Hvað er svona sniðugt við að gera endalaust opinbert grín að útliti, æði og klæðaburði keppenda í Eurovision? Stanslaust shaming. #12stig
— Stefán Máni (@Svartur_a_leik) May 12, 2017
Pólitík er aldrei langt undan þegar Eurovision-kynningar Gísla Marteins eru annars vegar og ljóst er að margir áhorfendur supu hveljur þegar hann kynnti framlag Ísraels til leiks. Lagið ber heitið „I feel alive“ og lét Gísli Marteinn eftirfarandi orð falla í aðdraganda þess: „En það er komið að Ísrael með lagi sem fjöldi fólks fyrir botni Miðjarðarhafs myndi gjarnan vilja syngja en getur ekki“.
Twitter-notendur voru fljótir til og sitt sýndist hverjum.
Þetta var ósmekklegt Gísli #12stig
— Helena Valtýsdóttir (@helenavaltys) May 11, 2017
Snörp pólitísk ádeila hjá íslenska kynninum. Vel gert. #12stig
— Petur Jonsson (@senordonpedro) May 11, 2017
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að Gísli Marteinn lætur viðlíkar sprengjur falla. Rússneska framlagið árið 2015 bar heitið „Million Voices“ og hafði Gísli Marteinn þetta að segja á sínum tíma:
Next up: Lagið Milljón raddir, fyrir hönd þjóðarinnar sem myrðir blaða- og stjórnmálamenn ef raddir þeirra eru óþægilegar. #12stig
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) May 23, 2015