Fjölmargir ferðamenn nota vefinn Tripadvisor á ferðalögum sínum til að finna meðmæli með veitingastöðum, stöðum sem vert er að skoða og upplifunum, í þeirri borg eða landi sem þeir eru staddir hverju sinni. Notendur geta gefið einkunnir og umsagnir og þannig raðast veitingastaðir og staðir upp í röð eftir einkunnunum. Það getur því skipt veitingastaði töluverðu máli að vera ofarlega á listanum og slæmar umsagnir, þó þær séu fáar, geta lækkað einkunnina verulega.
Tripadvisor hefur nú uppfært listann yfir tíu bestu veitingastaðina á Íslandi, eru þeir allir staðsettir í Reykjavík.
Apótekið, Austurstræti
Apótekið er líklega best staðsetti veitingastaðurinn á Íslandi. Matseðillinn er skemmtileg blanda af íslensku og evrópsku eldhúsi með argentísku grilli. Matseðillinn er fjölbreyttur og á staðnum er einnig lifandi kokteilbar. Apótekið skorar 4,6 í einkunn af rúmlega 3.500 umsögnum, geri aðrir betur.
Alan sem snæddi þar sem eiginkonu sinni í júní segir þau ekki hafa orðið fyrir vonbrigðum: „Þjónustan var frábær og maturinn á pari við það besta sem við höfum fengið í New York borg,“ segir hann. „Ef þú ert að leita að fínum veitingastað í Reykjavík sem keyrir þig ekki í þrot þá er þetta staðurinn.“
Sæta svínið, Hafnarstræti
Sæta svínið opnaði í byrjun árs 2016, og er í eigu sömu aðila og eiga Apótekið, og fleiri staði í miðbænum. Staðurinn er svokallaður gastropub með íslenskan mat með alþjóðlegu ívafi. Margir ferðamenn hrífast mjög af andrúmsloftinu sem minnir helst á krá.
Lesley sem borðaði þar með fjölskyldu sinni í júní segir að úrvalið hafi komið á óvart. „Ég fékk mér gómsætan og safaríkan borgara. Það er mikið af réttum dagsins. Það er hægt að fá íslenskan mat og líka matur sem er meira amerískur, mjög gott fyrir fjölskyldur eða fólk sem vill smakka eitthvað kunnuglegt,“ segir hún. „Verðið er fínt miðað við Reykjavík þar sem allt er frekar dýrt.“
Old Iceland Restaurant, Laugavegur
Fjölskylduveitingastaður sem sérhæfir sig í íslenskri matargerð, þá helst lamb og fisk. Staðurinn skorar 4,7 í einkunn úr rúmlega 3.200 umsögnum.
Áströlsk fjölskylda sem snæddi þar fyrr í þessum mánuði að loknum hringi í kringum landið segir veitingastaðinn hafa komið skemmtilega á óvart en þau gengu inn án þess að vera búin að bóka borð. „Þvílíka íslenska gestrisnin, flottur matseðill og drykkjarseðill. Laxinn og sveppasúpan eru alveg fimm stjörnu þegar kemur að framsetningu og bragði. Nautið, fiskurinn og lambið voru elduð fullkomlega,“ segir í umsögninni.
Kaffivagninn, Grandagarði
Kaffivagninn hefur gengið í endurnýjun lífdaga og skorar nú 4,7 í einkunn úr rúmlega 1.500 umsögnum. Kaffivagninn er elsti starfandi veitingastaður á Íslandi og kunnuglegur öllum sem hafa farið niður á höfn. Boðið er upp á íslenska rétti sem hefur heillað marga upp úr skónum.
Paul nokkur sem kom þangað fyrr á árinu segir að starfsfólkið hafi verið vinalegt og maturinn gómsætur: „Ein fiskisúpa og bjór, fiskur dagsins sem var bleikja borin fram á pönnunni með hvítvínsglasi. Takk fyrir.“
Margir dást að útsýninu yfir höfnina. Ivonne sem kom síðasta haust segir að heimsóknin sín hafi verið ógleymanleg. „Staðurinn er nýuppgerður og rammar fullkomlega inn þennan gómsæta mat.“
Dimon 11, Laugavegi
Þessi veitingastaður sérhæfir sig í íslenskum mat en einnig er boðið er upp á heimareykt grísarif, lamba T-bone steik og smáborgara. Tæplega hundrað manns hafa skilið eftir umsögn en þeir sem hafa gert það eru hæstánægðir.
Chris sem kom í júní síðastliðnum fór með fjölskyldunni sinni út að borða á staðnum og gefur honum hæstu einkunn. „Humarsamlokurnar voru vel útilátnar og líka fiskurinn,“ segir hann. „Allt var ótrúlega ferskt.“ Veronika sem kom í byrjun júlí var þó ekki sátt við að bíða í hálftíma eftir þremur samlokum.
Reykjavík Kitchen, Rauðarárstíg
Íslenskur matur í fínni kantinum. Þessi staður á Rauðarárstígnum nær í 4,8 í einkunn af rúmlega 1.600 umsögnum. Margir hrósa staðnum fyrir lambaskankana og bleikjuna.
Ferðamaður frá Bretlandi bendir á í umsögn sinni að veitingastaðir í Reykjavík séu margir hverjir með svipaðan matseðil. „Þess vegna skiptir miklu máli að finna stað sem eldar réttina mjög vel, þess vegna mæli ég með Reykjavík Kitchen. Við fengum okkur bleikju, plokkfisk og lambaskanka, þessa rétti sem maður finnur út um allt, en þarna voru þeir mjög góðir.“
Himalayan Spice, Geirsgötu
Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða veitingastað sem sérhæfir sig í matargerð frá Himalayafjöllunum og Nepal, eru þar einnig réttir sem margir tengja við indverska veitingastaði. Nær staðurinn upp í 4,9 í einkunn.
Taha frá Egyptalandi segir að hún hafi farið tvo daga í röð þegar hún heimsótti Ísland í júní. Marie sem fór þangað í maí segir andrúmsloftið á staðnum mjög þægilegt. „Maturinn var fágaður og gómsætur. Bragðgott kjöt og vandlega kryddað karrý og gullfalleg ostakaka!“
Arabian Taste, Laugavegi
Sýrlensk/arabískur veitingastaður sem nær 4,9 í einkunn úr rúmlega 1.100 umsögnum. Matseðillinn einkennist af réttum sem margir þekkja frá stöðum sem sérhæfa sig í mat frá Miðausturlöndum, kebab, shawarma og falafel. Verðið skemmir ekki fyrir en allar arabísku máltíðirnar eru undir þrjú þúsund krónum.
Í umsögn frá heimsókn í síðustu viku er staðurinn hlaðinn lofi: „Þessi staður er stórfenglegur! Æðislegur matur á góðu verði. Ég fór þangað eftir að hafa verið viku á Íslandi og þetta er líklega besti maturinn sem ég hef fengið á landinu,“ segir Sufyan. „Ég held að ég hafi beðið átta mínútur eftir matnum – á meðan það var mikið að gera!“
Mama Reykjavík, Bankastræti
Veitingastaður sem sérhæfir sig í mat fyrir grænmetisætur og þá sem eru vegan. Fær hann 4,9 í einkunn af hátt í 500 umsögnum.
Styrmir sem fór þangað núna í júlí segir að hann elski vinalega starfsfólkið. „Maturinn er alltaf ljúffengur og sætur,“ segir hann. Mælir hann með að fólk fái sér bolla af kakóinu þeirra.
Það má velta því upp hvort það sé tímabært að þeir sem fussa hvað mest út í veganisma setjist niður og prófi.
Turf House, Frakkastíg
Veitingastaðurinn sem fær fimm stjörnur í öllu er í óhefðbundnari kantinum en um er að ræða Turf House, eða Torfkofann, á Frakkastíg rétt hjá Hallgrímskirkju. Einungis þrír réttir eru á matseðli, lambborgari, steiktur fiskur og sjávarréttasúpa.
Þeir sem hafa skilið eftir umsagnir eru í skýjunum. Charlotte sem kom í janúar segir að hún muni koma aftur til Reykjavíkur bara til að fá sér aftur að borða þarna. „Ég veit ekki hvaða galdrar eru notaðir til að búa til svona góðan mat en þeir eru þarna!“
Gestur sem kom í desember segir að þetta hafi verið besti maturinn í Íslandsheimsókninni. „Vel útilátið og ótrúlegt bragð. Maðurinn sem rekur staðinn er mjög vinalegur sem gerði upplifunina enn betri.“