

„Kæra Deidre: Svokallaður vinur minn reyndi að sofa hjá drukkinni eiginkonu minni heima hjá mér – ég er brjálaður,” segir maðurinn í byrjun bréfsins.
Maðurinn segir að hann og eiginkona hans hafi verið gift í níu ár, séu bæði á miðjum fertugsaldri og eigi saman sjö ára gamlan son.
„Síðasta laugardag, þegar veðrið var gott, buðum við nokkrum vinum í grillveislu. Við vorum sjö saman – tvö önnur pör og vinnufélagi minn, en konan hans var í gæsun þennan dag. Við drukkum öll töluvert, sérstaklega konan mín, og hún byrjaði að dotta úti svo ég sendi hana upp í rúm,” segir maðurinn.
Hann segir að það hafi verið merkið fyrir hina til að halda heim á leið, en vinur hans ákvað að verða eftir til að hjálpa honum að ganga frá.
„Hann pantaði sér síðan leigubíl en spurði hvort hann mætti nota baðherbergið uppi áður en hann færi heim. Ég heyrði dynk og hélt að hann hefði kannski dottið, svo ég hljóp upp,“ segir maðurinn en óhætt er að segja að miður skemmtileg sjón hafi mætt honum þegar hann kom að vini sínum.
„Ég opnaði svefnherbergisdyrnar og þar var hann – ofan á konunni minni á meðan hún var alveg meðvitundarlaus. Ég var skelfingu lostinn. Ég öskraði á hann að fara og við það vaknaði sonur minn.“
Maðurinn bætir við að konan hans sé miður sín vegna málsins og muni aðeins að einhver var ofan á henni. „Hún hélt að þetta væri ég en ég myndi aldrei gera henni slíkt.“
Maðurinn segist hafa mætt í vinnuna á mánudeginum og rætt við vinnufélagann en hann farið undan í flæmingi og orðið vandræðalegur. Það eina sem hann hafi getað sagt var að konan hans hafi daðrað við hann fyrr um kvöldið.
„Ég var nálægt því að kýla hann á staðnum en vissi að það myndi ekki hjálpa neitt. Konan mín vill reyna að halda áfram, hún skammast sín og vill ekki fara með málið til lögreglunnar. Á meðan get ég varla horft á gaurinn.“
Ráðgjafi The Sun bendir á að eiginkona hans hafi ekki verið fær um að veita samþykki og hegðun sem þessi flokkist ekki undir neitt annað en nauðgun.
„Konur upplifa það oft eftir nauðgun að þær beri einhverja ábyrgð, sérstaklega ef þær hafa verið að drekka. Sannleikurinn er sá að ábyrgðin á þessari viðbjóðslegu árás liggur 100 prósent hjá samstarfsmanni þínum. Að hún vilji ekki fara til lögreglunnar er merki um að hún sé að reyna að verja sig fyrir áfallinu,“ segir ráðgjafinn.
„Hvettu hana til að leita sér hjálpar hjá sérfræðingum sem skilja hvað hún er að ganga í gegnum,“ segir hún og bætir einnig við að maðurinn ætti að leita til yfirmanna sinna vegna málsins.
„Ræddu við mannauðsdeildina og gerðu skýrt að konan þín sé ekki tilbúin að kæra málið. Spurðu hvaða skref sé hægt að taka til að halda þér og samstarfsmanni þínum aðskildum þar til þið ákveðið hvað þið viljið gera næst.“