fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Finnur fyrir sársauka þrátt fyrir að hafa verið bolað úr starfi í september

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 14. maí 2026 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daniel Levy, fyrrum stjórnarformaður Tottenham, hefur í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um erfiða stöðu félagsins í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.

Levy lét af störfum hjá Tottenham í september eftir tæplega 25 ár við stjórnvölinn hjá félaginu. Síðan þá hefur tímabil Spurs farið verulega úr böndunum og liðið berst nú fyrir lífi sínu í deildinni undir stjórn Roberto De Zerbi.

Eftir að hafa tekið við CBE-heiðursviðurkenningu í Buckingham-höll ræddi Levy við Sky Sports um stöðu mála hjá félaginu.

„Það eina sem ég hugsa um núna er að Tottenham haldi sæti sínu í úrvalsdeildinni,“ sagði Levy.

„Ég hefði aldrei getað ímyndað mér þessa stöðu í byrjun tímabils. Þetta eru auðvitað gríðarleg vonbrigði, en við verðum að horfa fram á veginn og vona að félagið verði áfram í deildinni.“

Levy viðurkenndi jafnframt að hann fyndi sterkt fyrir stöðu félagsins þrátt fyrir að vera ekki lengur við stjórnvölinn.

„Ég finn fyrir sársaukanum, en ég er bjartsýnn á að við komumst í gegnum þetta,“
sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt