

Spænsk yfirvöld rannsaka nú dauðsfallið en fyrstu vísbendingar benda til þess að um hörmulegt slys hafi verið að ræða.
Í frétt The Sun kemur fram að Hall hafi fundist látinn í blóðpolli í gærmorgun í húsinu sem hann hafði á leigu í bænum Santa Margalida á norðurhluta eyjarinnar.
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum hafði hann hlotið alvarlega höfuðáverka sem talið er að hafi stafað af glerbrotum. Lögregla telur mögulegt að Hall hafi rekið höfuðið í eða fallið á glerhurð eftir næturlangt partýstand.
Heimildir herma að hann hafi verið úti að skemmta sér fram á morgun ásamt hópi vina áður en hópurinn hélt áfram samkvæmi í húsinu.
Rannsókn beinist nú að því hvort áfengi eða önnur vímuefni hafi átt þátt í atburðarásinni. Vitni hafa sagt rannsakendum að Hall hafi orðið æstur áður en slysið átti sér stað og að hávær læti hafi heyrst úr húsinu skömmu áður en lögregla kom á vettvang.
Fjórir menn og tvær konur sem dvöldu í húsinu hafa verið yfirheyrð vegna málsins, en enginn hefur verið handtekinn. Krufning á að fara fram í Palma, höfuðborg Mallorca, og stendur rannsókn spænsku borgaralögreglunnar enn yfir.
Talsmaður breska utanríkisráðuneytisins staðfesti við The Sun að fjölskylda Hall njóti stuðnings yfirvalda í Bretlandi.
Hall vakti fyrst athygli árið 2015 þegar hann kom fram í þáttunum sem eru yfirleitt kallaðir TOWIE. Hann starfaði síðar sem fyrirsæta og athafnamaður og stofnaði eigið tískumerki eftir að fyrra fyrirtæki hans fór í gjaldþrot.
Hann lætur eftir sig dóttur River, sem fæddist árið 2017. Móðir hennar er fyrirsætan og sjónvarpskonan Misse Beqiri, sem Hall átti í stormasömu sambandi við um árabil.