fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fókus

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Fókus
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lisa Kudrow, sem fór með hlutverk Phoebe Buffay í Friends-þáttunum, fer ófögrum orðum um handritshöfunda þáttarins og segir að þeir hafi rætt opinskátt um kynferðislegar fantasíur sínar um mótleikkonur hennar, Jennifer Aniston og Courtney Cox.

Lisa er í athyglisverðu viðtali við The Times, sem Mail Online vitnar til, þar sem þetta kemur fram.

„Það var klárlega allskonar meinfýsni í gangi á bak við tjöldin,” sagði Lisa meðal annars í viðtalinu en handritshöfundarnir voru að stærstum hluta karlar.

„Ekki gleyma því að við vorum að taka upp fyrir framan 400 manna áhorfendahóp, og ef þú klikkaðir á línu frá einhverjum af þessum handritshöfundum eða fékkst ekki fullkomin viðbrögð, gátu þeir sagt hluti eins og: „Getur þessi tík ekki lesið? Hún er ekki einu sinni að reyna. Hún klúðraði línunni minni.“

Kudrow segir að Jennifer Aniston og Courteney Cox hafi verið vinsælt umræðuefni í grófum samræðum handritshöfundanna.

„Strákarnir sátu fram eftir nóttu og ræddu kynferðislegar fantasíur sínar um Jennifer og Courteney. Þetta var mjög öfgafullt,” segir Lisa sem kveðst strax hafa tekið þá ákvörðun að þeir mættu segja það sem þeir vildu um hana svo lengi sem hún heyrði ekki til.

Lisa, sem er orðin 62 ára, steig fram í viðtali við The Independent nýlega þar sem hún lýsti því að hún hafi stundum verið kölluð „sjötti vinurinn” og upplifað sig sem hálfgert aukaatriði hjá aðstandendum þáttanna.

Sjá nánar hér: Lisa Kudrow um tímann eftir Friends: „Engum var sérstaklega annt um mig“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“

Rósa fékk áfall þegar hún las utan á umbúðirnar – „Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Inga greinir frá andláti föður síns – „Hann var sæll að fá að fara“

Inga greinir frá andláti föður síns – „Hann var sæll að fá að fara“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“