fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Fókus

Komst að leyndarmáli kærustunnar með falinni myndavél

Fókus
Mánudaginn 20. apríl 2026 21:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður leitaði til sambands- og kynlífsráðgjafa The Sun eftir að hann komst að framhjáhaldi kærustu sinnar með óhefðbundnum hætti.

„Kærastan mín vildi opna sambandið en ég var ekki hrifinn af því en hún ákvað samt að gera það,“ segir maðurinn sem er 32 ára en kærasta hans 33 ára.

Að hans sögn þróaðist það sem byrjaði sem nagandi þörf fyrir að vita hvort hún væri að halda framhjá í óþægilegt en jafnframt spennandi leyndarmál.

„Ég fékk sannanir fyrir því að hún færi reglulega með aðra menn heim í íbúðina okkar til að sofa hjá þeim, eftir að ég setti upp leynilega myndavél í svefnherberginu. Í fyrstu varð ég trylltur, en svo kom yfir mig undarleg forvitni og áður en ég vissi af var ég farinn að njóta þess að horfa á upptökurnar,“ segir hann.

Miklar tilfinningar

Hann lýsir mikilli togstreitu og segir að tilfinningar hafi togast á.

„Ég fann fyrir sjálfsfyrirlitningu yfir því að geta notið þess að horfa á hana halda framhjá mér, en á sama tíma kveikti það í mér að sjá hana með öðrum. Mér leið samt illa, svo eftir að hún kom með annan mann heim, játaði ég hvað ég hafði gert.“

Kærastan varð æf þegar hann sagði henni frá því sem hann hafði gert, en rifrildið breyttist fljótt í ástríðufulla kynlífsstund.

Parið hefur verið saman í þrjú ár og að hans sögn hefur sambandið verið ævintýralegt frá upphafi. Hann lýsir kærustunni sem ófeiminni og mjög áhugasamri um kynlíf.

Þau kynntust á vinnustofu fyrir fyrirtæki á svæðinu og náðu strax vel saman. „Ég var nýlega orðinn einhleypur en vissi að ef ég myndi ekki gera eitthvað myndi ég sjá eftir því,“ segir hann. Viku síðar hittust þau á bar, kvöldið þróaðist áfram með kvöldverði og löngum samræðum og daginn eftir áttu þau ástríðufulla stund í svefnherberginu.

Segist vilja setja upp sýningu

Þau fluttu saman inn eftir fimm mánaða samband og allt hefur gengið vel síðan. „Við erum mjög ástfangin og kynlífið hefur orðið sífellt betra eftir því sem við kynntumst betur,“ segir hann.

Hann bætir við að þau hafi verið ævintýragjörn í kynlífi og meðal annars prófað svokallaða þríhyrninga. Þó viðurkennir hann að hann hafi alltaf frekar viljað hafa hana fyrir sig einn og haft áhyggjur af því að hún hefði meiri áhuga á öðrum.

Þegar hún lagði til að opna sambandið hafnaði hann því alfarið.

Nú, þegar hann fer í vinnuferðir, spyr hún hvort hann vilji setja myndavélina upp aftur. „Hún segist vera meira en tilbúin að setja upp „sýningu“ fyrir mig. Hingað til hef ég staðist það, en ætti ég að taka þessu sem leið til að halda tengingunni okkar sterkri?“ spyr hann.

Ráðgjafinn svarar:

„Eins og þú ert þegar farinn að átta þig á, getur svona leynilegt fyrirkomulag verið spennandi í byrjun, en það mun óhjákvæmilega naga sjálfsálitið þitt.

Þú og kærastan þín hafið verið að prófa ákveðnar fantasíur en það kemur með miklum kostnaði. Miðað við það sem þú skrifar hafið þið ekki tekist á við þá staðreynd að kærastan þín hélt framhjá þér. Án trausts er í raun engin framtíð til lengri tíma.“

Ráðgjafinn bendir einnig á að upptökurnar geti haft alvarlegar lagalegar afleiðingar.

„Sú staðreynd að þú spurðir hana ekki setur þig strax í slæma stöðu. Enn alvarlegra er að þú tókst upp viðkvæmar og persónulegar myndir án leyfis. Samkvæmt Online Safety Act 2023 er það refsivert brot. Þessir menn gætu haft sterkan grundvöll til að kæra þig, svo þú ættir alls ekki að halda þessu áfram.

Af öllum þessum ástæðum myndi ég eindregið ráðleggja þér að setja ekki upp myndavélar aftur og eyða öllum upptökum sem þú hefur safnað.“

Að lokum ráðleggur hún honum að leita til kynlífs- eða sambandsráðgjafa til að vinna úr stöðunni með kærustu sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Þessi fimm velja Ungfrú Ísland 2026

Þessi fimm velja Ungfrú Ísland 2026
Fókus
Fyrir 4 dögum

Val Kilmer rís upp frá dauðum með aðstoð gervigreindar og sumum til mikillar skelfingar – „Þið eruð viðbjóðsleg“

Val Kilmer rís upp frá dauðum með aðstoð gervigreindar og sumum til mikillar skelfingar – „Þið eruð viðbjóðsleg“
Fókus
Fyrir 5 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri