

Rúrik Gíslason hefur undanfarin fimm ár unnið alls 5,5 milljónir króna í verðlaunafé í sjónvarpsþáttum í Þýskalandi sem hann hefur látið renna til SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Þar að auki hefur hann látið ágóða af fleiri verkefnum renna til stuðnings bágstaddra barna í gegnum samtökin, meðal annars með framleiðslu á SOS bolnum í samstarfi við 66°Norður árin 2020 og 2021.Rúrik hefur þannig í sínum verkefnum alls aflað rúmlega 8,5 milljóna króna sem varið er til stuðnings við barnafjölskyldur í sárafátækt í verkefnum SOS í Malaví og Rúanda.
Rúrik tók nýverið þátt í sjónvarpsþættinum Wunder unserer Erde – Das große GEO Quiz á þýsku sjónvarpsstöðinni RTL, þar sem þekktir einstaklingar keppa í fræðandi spurningakeppni og þrautum. Rúrik keppti ásamt söngkonunni Vanessu Mai, en í þættinum keppa þrjú frægðarpör sín á milli og safna peningum til góðgerðarmála. Rúrik og Vanessa unnu 4.000 evrur í verðlaunafé, sem Rúrik ákvað að láta renna til SOS Barnaþorpanna á Íslandi.
Í myndskeiði hér má sjá þáttastjórnendur spyrja Rúrik út í framburð á íslenska orðinu „fjörður“ og nafni Vatnajökuls. Að lokum má sjá Rúrik og Vanessu leysa þraut þar sem Vanessa fjarstýrir leikfangabíl eftir leiðbeiningum Rúriks.
Þátturinn Rúrik í Rúanda var sýndur á RÚV í gær, mánudagskvöldið 13. apríl. Þar sýnir Rúrik á sér alveg nýja hlið og heimsækir barnafjölskyldur í sárafátækt sem stuðningur hans rennur til. Kynnti Rúrik sér hvernig fjölskylduefling samtakanna aðstoðar barnafjölskyldur við að komast úr sárafátækt og standa á eigin fótum. Þjóðarmorðið í Rúanda árið 1994 lagði veikbyggða innviði landsins í rúst og þjóðin glímir enn við afleiðingarnar.
Horfa má á þáttinn hér.
Rúrik hefur verið einn af fjórum velgjörðasendiherrum SOS Barnaþorpanna á Íslandi síðan 2018. Óhætt er að segja að starfsemi SOS Barnaþorpanna fyrir umkomulaus börn og brothættar barnafjölskyldur njóti góðs af frægð Rúriks í Þýskalandi.
Hlutverk velgjörðasendiherra SOS er að vekja athygli á starfi samtakanna fyrir börn án foreldraumsjár og ósjálfbjarga barnafjölskyldur í sárafátækt. Velgjörðasendiherrar SOS á Íslandi eru auk Rúriks, Eva Ruza, Hera Björk Þórhallsdóttir og Eliza Reid.
Kynna má sér starfsemi SOS barnaþorpanna og hvernig gerast má fjölskylduvinur hér.