fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fókus

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 12:30

Vala Kristín Eiríksdóttir. Mynd: Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikararnir Vala Kristín Eiríksdóttir og Hilmir Snær Guðnason hafa verið par síðan sumarið 2023. Þann 30. maí 2025 fæddist dóttir þeirra, Oddný Lóa Völudóttir, en Hilmir Snær á tvær dætur úr fyrri samböndum.

„Hann er miklu eldri, hann er 22 árum eldri en ég. Hann er 57 ára og ég 34 ára. Hann á eina dóttur sem er nokkrum árum yngri en ég,“ segir Vala Kristín sposk í viðtali við Fullorðins.

Vala Kristin er fædd árið 1991 og Hilmir Snær árið 1969.

Segir hún að þegar parið hafi tilkynnt að von væri á dóttur, var Guðni Kolbeinsson, faðir Hilmis Snæs spurður: „Hvað segirðu Guðni, ertu að verða afi svona gamall? Já hann Hilmir minn hann eignast dætur á 15 ára fresti. Það eru næstum nákvæmlega 15 ár á milli allra. En það er bara stemning.“

Segir hún það ekki hafa verið planið að stofna fjölskyldu, svo hafi það bara gerst og sé yndislegt.

Aðspurð um hvort hún finni fyrir aldursmuninum svarar hún neitandi.

„Nei alveg ótrúlega lítið. Ég veit ekki hvort ég er gömul sál og hann ung. Hann er ungur í anda og orkumikill. Svo er þetta svo afstætt. Ég man bara þegar hann fer að tala um tíma eða tónlist, eða atburði og ég er: ég var barn og hann fullorðinn þegar þetta átti sér stað.“

Segir hún að margir bestu vina hennar í bransanum séu eldri en hún og segist hún hafa fundið þegar hún varð leikari og fór að vinna með fólki á öllum aldursbilum að „aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“
Fókus
Fyrir 1 viku

Patrekur ákvað að hætta að drekka þegar hann sá sjálfan sig: „Ég gat ekki horft á þetta. Mér fannst þetta svo hrikalegt“

Patrekur ákvað að hætta að drekka þegar hann sá sjálfan sig: „Ég gat ekki horft á þetta. Mér fannst þetta svo hrikalegt“
Fókus
Fyrir 1 viku

Nýtt lag frá Fussumsvei: „Skattheimtumennirnir“ – Fjörugt og hrátt rokk

Nýtt lag frá Fussumsvei: „Skattheimtumennirnir“ – Fjörugt og hrátt rokk