fbpx
Miðvikudagur 21.maí 2025
Fókus

Læknar sögðu Anton Bjarka að hafa engar áhyggjur af góðkynja æxlinu – Fann fyrir reiði þegar það kom í ljós að það væri illkynja og ágengt

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 12. desember 2024 12:13

Anton Bjarki Olsen er gestur vikunnar í Fókus.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fatahönnuðurinn Anton Bjarki Olsen greindist með mjög sjaldgæfa tegund af krabbameini í sumar. Hann hafði verið með æxlið um nokkurt skeið en fengið þær fréttir frá læknum að það væri góðkynja og ekkert til að hafa áhyggjur af. Hann vildi seinna láta fjarlægja það því það var farið að valda honum óþægindum, þá kom í ljós að um væri að ræða illkynja æxli sem að meðaltali einn greinist með á þriggja ára fresti á Íslandi.

Anton er gestur vikunnar í Fókus. Þú getur horft á þáttinn hér að neðan eða hlustað á Spotify.

video
play-sharp-fill

Anton er 26 ára en hefur verið að sauma föt síðan hann var 16 ára gamall. Hann gaf út forvorlínu 2025 (pre spring 2025) í byrjun desember en línan er mjög persónuleg fyrir hann, á meðan hann var að vinna í henni greindist hann með krabbamein.

„Þetta er sjaldgæf tegund af sarkmeini (sarcoma). Ég greindist þann 11. júlí síðastliðinn en það var í rauninni eftir aðgerð,“ segir hann.

„Fyrir um tveimur árum fann ég fyrir kúlu í fætinum á mér, ég lét tjékka á því. Það var greint sem góðkynja æxli og sagt að það væri engin þörf að taka það nema mér þætti það óþægilegt eða eitthvað þannig. Svo fór ég að finna fyrir miklum óþægindum og þurfti að biðja um að láta taka það. Það tók rosalega langan tíma að fá að komast að í aðgerð og að berjast við kerfið, að fá að komast inn í þessa aðgerð. Svo fékk ég að fara í aðgerðina og viku seinna var hringt í mig og sagt mér að þetta hafi verið misgreint og væri ekki góðkynja heldur illkynja, sem var náttúrulega smá sjokk.

Ég var búinn að vera með þetta þarna í mjög langan tíma þannig ég var ekki mjög bjartsýnn.“

Anton Bjarki Olsen á tískusýningunni á Hvalasafninu. Mynd/Jeffrey Guarino

Einblíndi á sköpunarkraftinn

Anton var strax sendur í aðra aðgerð og hóf síðan geislameðferð. „Þetta gerist á meðan ég var að vinna í línunni. Ég var með forsýningu á línunni í september á Erlendur Fashion Week sem var á Hvalasafninu,“ segir hann og bætir við að það hafi verið erfitt að ganga í gegnum allt þetta á sama tíma og hann var að undirbúa sýninguna.

„Það var mikið stress í gangi en það gekk vel.“

Brot af forvorlínu 2025. Mynd/Ljós Films

Erfitt að bíða

Aðspurður hvort hann hafi fundið til reiðar að hafa verið vitlaust greindur og að hann hafi verið með illkynja æxli í fætinum allan þennan tíma segir Anton:

„Jú, ég fann fyrir mjög mikilli reiði. Mjög erfitt tímabil þarna þar sem maður þarf í raun að bíða eftir því að fá að vita hvort þetta sé búið að dreifa sér eða ekki.“

Eftir að Anton fékk þær fréttir að æxlið væri illkynja þurfti hann að bíða í einn og hálfan mánuð eftir að komast í jáeindaskannann, óviss um heilsu sína og framtíð.

„Það var í rauninni erfiðasta tímabilið, að bíða eftir því. Ég bjóst við því versta því ég var búinn að vera með þetta svo lengi í líkamanum, sem ég vissi að þetta væri í líkamanum. Það var mjög mikil reiði og kvíði og svona, svolítið erfitt að vinna. En ég reyndi að fókusa á að sauma og á línuna, það hjálpaði mjög mikið.“

Loksins var biðin á enda og hann fékk góðar fréttir úr jáeindarskannanum. Krabbameinið var ekki búið að dreifa sér og var hann sendur í geislameðferð á svæðinu, talsvert meiri en vaninn er en það var gert svo hann þyrfti ekki að fara í lyfjameðferð.

Anton gaf einnig út fatalínu í fyrra.

Tilviljun að vera þessi eini

Anton fann fyrir engum einkennum að hann væri með krabbamein. Eina sem hann fann fyrir var kúlan í lærinu, sem var á stærð við golfkúlu.

Krabbameinið er ekki ættgengt. „Eins og læknirinn sagði við mig, þá er þetta bara óheppnisdæmi, þeir vita ekkert af hverju þetta kemur. Þeir fá einn svona á þriggja ára fresti sem greinist með þetta á Íslandi,“ segir hann.

Anton ræðir nánar um fatalínuna, sköpunarferlið og fleira í þættinum sem má horfa á hér að ofan eða hlusta á Spotify.

Fylgstu með Antoni á Instagram, TikTok og á heimasíðu hans.

@antonbjarkiolsen The Spring 2025 collection is the culmination of a year-long creative process. It draws from an obsession with exquisite fabrics and materials interwoven with patterns and elements reminiscent of Icelandic upbringing. Each piece tells a story of beauty, craftsmanship, and the Icelandic culture that continues to inspire.‎ #antonbjarkiolsen #couture #iceland #campaign #MensFashion #fashiontiktok #fyp ♬ original sound – Anton Bjarki Olsen

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Situr enn í henni hvað hún fann í ruslinu eftir að Weinstein nauðgaði henni

Situr enn í henni hvað hún fann í ruslinu eftir að Weinstein nauðgaði henni
Fókus
Í gær

Sauð upp úr á rauða dreglinum: Varalesari varpar ljósi á hvað Denzel Washington sagði

Sauð upp úr á rauða dreglinum: Varalesari varpar ljósi á hvað Denzel Washington sagði
Hide picture